„Best fyrir“ & „síðasti notkunardagur“
Margir velta fyrir sér hvort matvæli séu örugg eftir að dagsetning á umbúðum rennur út. Að skilja muninn á „best fyrir“ og „síðasti notkunardagur“ getur sparað peninga, minnkað matarsóun og aukið öryggi.
Gott nesti þarf hvorki að vera flókið né alltaf eins. Oft þarf aðeins að breyta einu eða tvennu til að skapa fjölbreytni.
Vantar hugmyndir í nestisboxið? Hér eru 25 einfaldar og fjölbreyttar hugmyndir sem hægt er að blanda saman eftir smekk, aldri, matarlyst og þörfum barna – eða fullorðinna.
1. Trefjaríkt brauð með osti og kalkúnaáleggi ásamt gúrku eða gulrótum.
2. Heilkornabrauð eða hafrabolla með kotasælu og harðsoðnu eggi ásamt eplabitum.
3. Heilkorna- eða fjallagrasa flatkaka með klassískum hummus, rauðrófuhummus eða linsubaunahummus
ásamt paprikustrimlum.
4. Heilhveititortilla með smurosti og spínati ásamt ávexti.
5. Quesadilla úr heilhveiti með osti og spínati ásamt niðurskornu grænmeti.
6. Fræhrökkbrauð með túnfisksalati, ostasalati eðakjúklingabauna- og fetamauki ásamt grænmeti.
7. Hafraskonsa með rjómaosti og berjum eða niðurskornu grænmeti.
8. Pizzasnúður úr heilhveiti eða heilkorna-pizzusneið með ávexti eða grænmeti.
9. Bananabrauð eða lítið rúgbrauð með kakói með skyri, osti eða ferskum berjum.
10. Harðsoðið egg, heilkornakex og gúrkubitar.
11. Klassísk eggjahræra eða indversk eggjahræra með trefjaríku brauði og grænmeti.
12. Falafel með flatköku og niðurskornu grænmeti.
13. Stökkar kjúklingabaunir með heilkornakexi og ávexti.
14. Edamame-baunir með heilkornakexi, ostbitum og ávexti.
15. Kjúklingabitar eða rifinn kjúklingur með trefjaríku brauði og skornum vínberjum.
16. Fiskibollur eða fiskifingur með trefjaríku brauði og gúrku.
17. Linsubaunasúpa eða önnur súpa í hitabrúsa ásamt trefjaríku brauði.
18. Hreint skyr eða grísk jógúrt með höfrum, ávöxtum og berjum.
19. Næturgrautur með vanillu og ferskum berjum.
20. Klassískur hafragrautur með banana og kanil.
21. Chiagrautur með berjum og hindberja-chiasultu. Sleppið hnetusmjöri ef hnetur eru ekki leyfðar í
skólanum.
22. Kotasæla með eplabitum, höfrum, kanil og sesamfræjum.
23. Bananapönnukökur eða hafravöfflur með hreinu skyri og ferskum berjum.
24. Heilhveitipasta með parmesan, pestói eða tómatsósu ásamt ávexti eða grænmeti.
Ekki þarf að setja marga ólíka hluti í hvert nestisbox. Einfalt nesti sem barnið borðar er alltaf betra en flókið nesti sem kemur aftur heim.
Fylgið reglum skólans um ofnæmi og lagið stærð og lögun matarins að aldri og færni barnsins.
Möguleikarnir eru fjölmargir og oft þarf aðeins að breyta einu eða tvennu til að skapa tilbreytingu. Leyfið barninu gjarnan að taka þátt í valinu og prófið ykkur áfram — besta nestið er það sem barninu finnst gott og gefur því orku og næringu inn í skóladaginn.