Notkunarskilmálar

1. Gildissvið
Vefsíðan Gott og einfalt inniheldur mataruppskriftir og annan fróðleik ásamt ýmissi virkni þessu tengdu. Með því að nýta vefsíðuna samþykkir þú notkunarskilmálana.

2. Notendur
Hægt er að nota vefsíðuna án innskráningar. Til að nýta ákveðna eiginleika er þörf á innskráningu og við það vistast vissar persónuupplýsingar. Með því að nota Facebook- eða Google-innskráningu heimila notendur Gott og einfalt aðgang að nafni, netfangi sínu og auðkennismynd/prófílmynd.

Facebook: Til að aftengja Facebook-innskráningu þurfa notendur að aftengja aðgang bæði á Mínum síðum og í stillingum á Facebook, undir Forrit og vefsíður, þar sem finna þarf Gott og einfalt og velja að fjarlægja aðgang.

Google: Ef notendur skrá sig inn með Google nægir að eyða notendaaðgangi á Mínum síðum. Tengingin við Google rofnar við það og Gott og einfalt sækir ekki frekari gögn frá Google.

3. Notkun
Afnot af vefsíðunni er á eigin ábyrgð notenda. Gott og einfalt ábyrgist hvorki virkni vefsíðunnar né áreiðanleika upplýsinganna sem þar er að finna.

4. Einkaafnot
Allt efni á vefsíðunni er höfundarréttarvarin eign Gott og einfalt en notendum eru frjáls persónuleg afnot sem ekki eru í viðskiptalegum tilgangi.

5. Afnot í viðskiptalegum tilgang
Ráðgjafar geta keypt aðgang að vefsíðunni til afnota með skjólstæðingum sínum.

6. Efni til birtingar
Höfundar uppskrifta eða annars efnis til almennrar birtingar á Gott og einfalt heimila óskoruð afnot efnisins eins og um höfundarrétt væri að ræða.

7. Persónuvernd og vafrakökur
Notaðar eru vafrakökur til að tryggja virkni vefsíðunnar og safna upplýsingum um hvernig hún er notuð. Eftirtöldum persónuupplýsingum er safnað frá notanda ef hann kýs að nota innskráningu á „mínar síður“: Nafn, netfang. Tilgangur vinnslunnar er að gefa kost á innskráningum á vefsíðuna. Gott og einfalt deilir engum persónugreinanlegum upplýsingum með utanaðkomandi.

Notendur eiga rétt á aðgangi að gögnum sínum, leiðréttingu þeirra, takmörkun vinnslu og eyðingu í samræmi við gildandi persónuverndarlög.

Gögn eru varðveitt meðan notendaaðgangur er virkur eða í allt að 24 mánuði eftir síðustu notkun, þar til eyðingu öryggisafrita er lokið. Notendur geta hvenær sem er óskað eftir aðgangi að gögnum sínum, leiðréttingu, takmörkun vinnslu eða eyðingu með því að senda tölvupóst á: [email protected]

Meðferð persónuupplýsinga fer jafnframt fram í samræmi við persónuverndarstefnur SÍBS og Krabbameinsfélags Íslands , eftir því sem við á.

8. Breytinga
Gott og einfalt áskilur sér rétt til að breyta þessum notkunarskilmálum hvenær sem er og taka slíkar breytingar gildi um leið og þær hafa verið birtar á vefsíðunni.

    SÍBS merki
    Krabbameinsfélagið merki