Fræhrökkbrauð

graenmetis
vegan
kjotlaust

Brakandi hollt og gott frækex. Þessi uppskrift er trefjarík.

Sesamfræ og afurðir úr þeim,
Kornvörur sem innihalda glúten,
Fræhrökkbrauð

Aðferð

  1. Hitið ofninn í 160°C.

  2. Blandið sólblómafræjum, hörfræjum, sesamfræjum og graskersfræjum saman við husk, maísmjöl, salt og vatn í skál. Látið blönduna standa í um 15 mínútur þar til hún hefur þykknað og tekið sig.

  3. Bætið olíu og oregano saman við og hrærið með sleif eða skeið þar til allt hefur blandast vel saman.

  4. Setjið bökunarpappír á ofnplötu og setjið deigblöndunni á hana. Ef gerður er stærri skammtur gæti þurft að nota fleiri plötur.

  5. Leggið annan bökunarpappír yfir deigið og sléttið úr því með fingrum eða kökukefli þar til deigið hefur dreifst jafnt á plötunni og orðið nokkuð þunnt.

  6. Bakið hrökkbrauðið í miðjum ofni í um 40-45 mínútur.

  7. Takið hrökkbrauðið úr ofninum og leyfið því að kólna aðeins á ofnplötunni. Brjótið síðan í minni bita og geymið í loftþéttri krukku eða boxi. 

    Step 7

Gott er að setja harðsoðin egg og avokadó ofan á fræhrökkbrauðið og jafnvel toppa með smá sítrónupipar. 

Hægt er að geyma fræhrökkbrauðið í loftþéttu íláti við stofuhita í allt að 2 vikur. 

Næringargildi
User Image

Höfundur

Gott og einfalt
Gott og einfalt

Innihald

2 skammtar
100 
g
Sólblómafræ
30 
g
Hörfræ
35 
g
Sesamfræ (hvít eða svört)
60 
g
Graskersfræ
msk
Husk-trefjar (eða möluð hörfræ)
msk
Maísmjöl
0.25 
tsk
Salt
1.5 
dl
Vatn
1.5 
msk
Olía (t.d. ólífuolía)
0.5 
tsk
Oreganó (eða timían - má sleppa)
Bæta á innkaupalista
Bæta á vikumatseðil
Prenta uppskrift
Afrita slóð

Slóð hefur verið afrituð

Senda í tölvupósti