Klassískur hafragrautur

graenmetis
kjotlaust
vegan

Frábær sem morgunmatur eða sem einföld og næringarrík kvöldmáltíð.

Hnetur og afurðir úr þeim,
Mjólk og mjólkurafurðir (þ.m.t. laktósi),
Kornvörur sem innihalda glúten,
Klassískur hafragrautur

Aðferð

  1. Skolið epli og skerið í teninga. 

  2. Setjið epli í pott (haldið nokkrum bitum eftir til að setja ofan á grautinn í lokin). Bætið haframjöli, vatni, kanil og salti út í pottinn. Hitið við miðlungsháan hita og hrærið reglulega með sleif eða skeið þar til suðan kemur upp.

  3. Þegar suðan er komin upp, slökkvið undir pottinum og hrærið í grautnum í um 1 mínútu eða þar til réttri og þéttri áferð hefur verið náð. 

  4. Hakkið möndlurnar gróft. 

  5. Setjið grautinn í skálar og dreifið hökkuðum möndlum og nokkrum eplabitum yfir.

Það skemmtilega við hafragraut er að hægt er að leika sér með hann á marga vegu. Til dæmis má bæta út í hann kryddum eins og negul, múskat eða vanillu. Einnig má setja út í hann kókosflögur, hnetur eða fræ, og nota þá mjólk sem hentar best – hvort sem það er léttmjólk, haframjólk, kókosmjólk eða möndlumjólk.

Aðrir möguleikar eru að bæta út í grautinn möndlu- eða hnetusmjöri, döðlum, rúsínum eða ferskum berjum. Sumum finnst líka gott að sletta smá nýmjólk, rjóma eða kókosrjóma yfir grautinn áður en hann er borinn fram.

Næringargildi
User Image

Höfundur

Gott og einfalt
Gott og einfalt

Innihald

2 skammtar
stk
Epli (valkvætt)
120 
g
Haframjöl
dl
Vatn
tsk
Kanill (valkvætt)
0.25 
tsk
Salt
msk
Möndlur (valkvætt)
Bæta á innkaupalista
Bæta á vikumatseðil
Prenta uppskrift
Afrita slóð

Slóð hefur verið afrituð

Senda í tölvupósti