Rauðrófuhummus
Ljúffengur, litríkur og næringarríkur rauðrófuhummus sem bætir trefjum við mataræðið.

Ljúffengur, litríkur og næringarríkur rauðrófuhummus sem bætir trefjum við mataræðið.

Hitið ofninn í 200°C.
Vefjið rauðrófuna í álpappír og ofnbakið við 200°C í 40–60 mínútur eða þar til hún er mjúk í gegn. Einnig er hægt að sjóða rauðrófuna. Afhýðið hana þá fyrst, skerið í teninga og sjóðið í potti í 10–15 mínútur eða þar til hún er orðin mjúk.
Setjið kjúklingabaunirnar í sigti, skolið þær undir köldu vatni og látið vatnið renna vel af.
Rífið börkinn af sítrónunni með fíngötuðu rifjárni og kreistið safann úr henni.
Setjið öll hráefnin nema ólífuolíu, sítrónusafa og sítrónubörk í matvinnsluvél og maukið vel (einnig má nota töfrasprota). Hellið síðan ólífuolíu og sítrónusafa hægt saman við á meðan þið blandið þar til hummusinn verður silkimjúkur. Notið sítrónubörk eftir smekk.
Gott er að smakka hummusinn til jafnóðum. Byrjið á að setja lítið af sítrónusafa og bætið honum síðan smátt og smátt við ásamt olíunni þar til áferðin og bragðið eru eins og þið viljið hafa það.
Hummusinn er tilvalinn sem ídýfa með niðurskornu grænmeti eða sem álegg á grófkorna- eða súrdeigsbrauð.