Bleikur þeytingur
Ljúffengur og næringarríkur þeytingur með skyri, haframjöli og hindberjum – fullkomin byrjun á deginum eða hressandi millimál!

Ljúffengur og næringarríkur þeytingur með skyri, haframjöli og hindberjum – fullkomin byrjun á deginum eða hressandi millimál!

Þíðið hindberin eða hitið þau stuttlega í potti og látið síðan kólna á meðan hin hráefnin eru tekin saman.
Skrælið engifer og rífið það niður með rifjárni. Takið hýðið af banana og skerið hann í minni bita.
Setjið hindber, engifer, banana, skyr, mjólk, haframjöl og klaka í skál eða könnu. Maukið með töfrasprota þar til blandan verður jöfn og silkimjúk. Einnig má nota blandara.
Hellið þeytingnum í skál eða glas. Skreytið með nokkrum ferskum eða frosnum hindberjum, bláberjum, kókosflögum og smá höfrum, ef vill.
Viltu hafa þeytinginn þinn aðeins þykkari? Látið hann standa í 5 mínútur því þá sér haframjölið um að þykkja hann. Auðvelt er að útbúa þennan þeyting með glútenlausu haframjöli.