Hafrasmoothie
Hafrasmoothie er mettandi og hentar vel sem morgunmatur eða millimál.

Hafrasmoothie er mettandi og hentar vel sem morgunmatur eða millimál.

Takið hýðið utan af banana og brjótið hann í bita. Setjið í blandara eða matvinnsluvél.
Kreistið safann úr límónunni í blandara. Bætið höfrum, frosnu mangói og haframjólk út í.
Látið blandarann ganga þar til allt hefur blandast vel saman og drykkurinn er sléttur og silkimjúkur.
Hellið drykknum í glös og skreytið með bananaspjótum ef þið viljið.
Ef þið viljið bera drykkinn fallega fram má setja bananaspjót ofan á glasið. Afhýðið banana, skerið í frekar þykkar sneiðar og þræðið á lítil spjót eða langa tannstöngla.
Hægt er að skipta mangói út fyrir aðra ávexti sem til eru, til dæmis frosin jarðarber, ananas eða bláber. Einnig má bæta við smá jógúrti, próteindufti, hreinu skyri, örlítið af frosnu blómkáli eða soðnum kjúklingabaunum ef þið viljið gera drykkinn meira mettandi.
Drykkurinn er bestur ferskur en má geyma í kæli í nokkrar klukkustundir.