Kjúklingabauna- og fetamauk

graenmetis
kjotlaust

Frábært nesti eða millimál – tilvalið í skólann, vinnuna, eða ferðalagið. 

Mjólk og mjólkurafurðir (þ.m.t. laktósi),
Hnetur og afurðir úr þeim,
Kjúklingabauna- og fetamauk

Aðferð

  1. Hellið kjúklingabaunum í sigti og skolið vel undir köldu vatni. Hristið sigtið létt til að losna við umfram vatn.

  2. Setjið baunirnar í matvinnsluvél. Ef þið eigið ekki matvinnsluvél, notið töfrasprota eða öflugan blandara. Takið utan af hvítlauk og bætið honum við. Maukið þar til blandan verður jöfn og mjúk.

  3. Skolið chili og saxið smátt. Bætið chili  út í kjúklingabaunamaukið ásamt jógúrti, fetaosti, pestó (eða sólþurrkuðum tómötum) og paprikudufti. Maukið áfram þar til blandan verður jöfn og vel blönduð.

  4. Kreistið sítrónu og bætið safanum út í maukið ásamt salti og pipar eftir smekk. Smakkið til og stillið bragð og áferð með kryddum, vatni eða meiri sítrónusafa eftir þörfum.

Bætið smá hnetusmjöri út í maukið fyrir rjómakenndari áferð. Einnig er gott að bæta við ferskum kryddjurtum eins og kóríander eða steinselju, sérstaklega ef þær eru til í eldhúsinu þá stundina.

Dásamlegt er að bera maukið fram með niðurskornu grænmeti eins og gulrótum, agúrku og papriku, heilkorna brauði eða frækexi.

Næringargildi
User Image

Höfundur

Af bestu lyst
Af bestu lyst

Innihald

2 skammtar
200 
g
Kjúklingabaunir (í dós eða soðnar)
rif
Hvítlaukur
0.5 
stk
Chillí (ferskt - ef þurrkað þá minna)
50 
ml
Jógúrt (hreint)
30 
g
Fetaostur
tsk
Pestó (úr sólþurrkuðum tómötum eða sólþurrkaða tómata)
0.25 
tsk
Paprikuduft
0.5 
stk
Sítróna (safinn)
0.25 
tsk
Pipar
0.25 
tsk
Salt
Bæta á innkaupalista
Bæta á vikumatseðil
Prenta uppskrift
Afrita slóð

Slóð hefur verið afrituð

Senda í tölvupósti