Klassísk eggjahræra

kjotlaust
graenmetis

Hrærð egg eru bæði ljúffeng og næringarrík. Þau eru góð ein og sér eða með heilhveitibrauði, vöfflum, pönnukökum eða fersku grænmeti.

Egg og afurðir úr þeim,
Klassísk eggjahræra

Aðferð

  1. Brjótið eggin í skál, bætið við salti og hrærið létt með gaffli þar til blandan er vel blönduð og heiðgul. Leyfið blöndunni að standa í um 5-10 mín.

  2. Setjið olíu á pönnu og leyfið henni að hitna rólega á miðlungslágum hita. Þegar olían er farin að hitna, hellið eggjahrærunni á pönnuna.

  3. Hrærið stöðugt í eggjunum með sílikonsleikju eða öðrum hitaþolnum spaða þar til þau byrja að þykkna og taka á sig form, í um 1–2 mínútur. Takið þá pönnuna af hitanum því eggin halda áfram að eldast. Best er að stoppa meðan þau eru enn örlítið blaut.

  4. Setjið eggjahræruna á disk eða berið fram á pönnunni. Kryddið með pipar eftir smekk og toppið með ferskri steinselju eða öðrum kryddjurtum að eigin vali.

Til að ná fullkomnum hrærðum eggjum er gott að passa að ofelda ekki en mjúk og safarík egg eru lykillinn. Hitinn á pönnunni má ekki vera of hár annars verða eggin þurr og gúmmíkennd. Eldið egg aðeins þar til þau eru rétt stífnuð, því eftirhitinn klárar eldunina.

Næringargildi
User Image

Höfundur

Gott og einfalt
Gott og einfalt

Innihald

2 skammtar
stk
Egg
0.25 
tsk
Salt
0.5 
msk
Olía (t.d. ólífuolía)
0.5 
tsk
Pipar (valkvætt)
g
Steinselja (valkvætt)
Bæta á innkaupalista
Bæta á vikumatseðil
Prenta uppskrift
Afrita slóð

Slóð hefur verið afrituð

Senda í tölvupósti