Pizzasnúðar

Pizzasnúðar eru alltaf vinsælir í nestisboxið. 

Kornvörur sem innihalda glúten,
Egg og afurðir úr þeim,
Mjólk og mjólkurafurðir (þ.m.t. laktósi),
Pizzasnúðar

Aðferð

https://fuldkorn.dk/

    Deig

  1. Leysið þurrgerið upp í volgu vatni í skál og látið standa í nokkrar mínútur þar til það freyðir.

  2. Bætið saltinu (notið 1/2 af saltinu) og olíu í skálina og hrærið síðan heilhveitinu og hveitinu smám saman saman við blönduna. Byrjið að hræra með sleif og hnoðið síðan deigið vel með höndunum á borði með örlitlu hveiti. Einnig má nota hrærivél með hnoðkrók og látið vélina vinna deigið í nokkrar mínútur.

  3. Fletjið deigið út í ferhyrning um það bil 40 x 20 cm. Gætið þess að nota nóg af hveiti undir deigið til að það festist ekki við borðið.

  4. Látið deigið hefast í 20–30 mínútur á meðan fyllingin er undirbúin.

  5. Fylling

  6. Takið hýðið af hvítlauknum og saxið hann smátt. Blandið saman í skál hvítlauk, hökkuðum tómötum, restinni af saltinu og pipar.

  7. Skolið og skerið paprikuna í tvennt og fjarlægið fræin. Takið hýðið af lauknum. Saxið papriku og lauk smátt og skerið skinkuna í strimla. Rífið mozzarellaostinn með rifjárni.

  8. Brjótið eggin í skál og hrærið létt með gaffli.

  9. Samsetning og frágangur

  10. Hitið ofn í 200°C með blæstri.

  11. Dreifið tómatsósunni í þunnu lagi yfir útflatt deigið.

  12. Setjið síðan papriku, lauk og skinku jafnt yfir allt. Stráið oreganó yfir í lokin.

  13. Rúllið deiginu upp eins og rúllutertu og skerið í um það bil 20 sneiðar.

  14. Raðið sneiðunum á ofnplötu með bökunarpappír. Deigið ætti að vera aðeins blautt og klístrað en það gerir snúðana extra mjúka og safaríka.

  15. Ýtið snúðunum aðeins saman svo fyllingin haldist inni við bakstur. Penslið snúðana með eggi og stráið rifnum mozzarella yfir.

  16. Bakið pítsusnúðana við 200°C í ofni með blæstri í um það bil 20 mínútur eða þar til osturinn er bráðnaður og snúðarnir eru ljósbrúnir í köntunum.

Ef þið viljið sleppa kjöti prófið að nota sólþurrkaða tómata í staðinn fyrir skinku í fyllinguna. 

Það má gjarnan frysta snúðana eftir að þeir eru bakaðir og taka svo út eftir þörfum.

Næringargildi
Fuldkornspartnerskabet

Innihald

20 skammtar
15 
g
Þurrger
dl
Vatn
tsk
Salt
msk
Olía
200 
g
Heilhveiti
300 
g
Hveiti (t.d. durum, spelt eða meira heilhveiti)
rif
Hvítlaukur
200 
g
Tómatar (hakkaðir úr dós)
0.5 
tsk
Pipar
stk
Paprika
stk
Laukur (lítill)
100 
g
Skinka (eða sólþurrkaðir tómatar)
100 
g
Mozzarella
stk
Egg (eða mjólk)
msk
Oreganó (eða eftir smekk)

Ein uppskrift miðast við 20 skammta eða 20 stykki af pizzusnúðum. 

Bæta á innkaupalista
Bæta á vikumatseðil
Prenta uppskrift
Afrita slóð

Slóð hefur verið afrituð

Senda í tölvupósti