Bananabrauð
Ekki bara ljúffengt heldur líka sérlega trefjaríkt og hollt sætabrauð.

Ekki bara ljúffengt heldur líka sérlega trefjaríkt og hollt sætabrauð.

Forhitið ofninn í 180°C.
Stappið bananana í skál með gaffli og blandið All-Bran út í. Látið standa í um 3 mínútur eða þar til All-Bran kornið hefur mýkst.
Brjótið eggin í aðra skál. Bætið olíu og sykri við og þeytið saman.
Blandið bananahrærunni og eggjablöndunni saman.
Bætið hveiti, lyftidufti, salti og hnetum saman við deigið og blandið vel. Ef hneturnar eru stórar, má saxa þær niður áður.
Smyrjið aflangt brauðform með olíu og setjið deigið varlega í formið.
Bakið á neðstu rim í um 1 klukkustund. Kælið brauðið vel áður en það er sneitt niður.
Veljið það hveiti sem ykkur hentar. Til dæmis má blanda saman venjulegu hveiti og grófara mjöli eins og heilhveiti eða möluðu haframjöli til að auka trefjar og fá grófari áferð.