Klassískur hummus
Klassíski hummusinn er kremkennd blanda úr kjúklingabaunum, tahini, sítrónu og hvítlauk. Hollur, einfaldur og góður sem ídýfa með grænmeti eða sem smyrja á vefjur og samlokur.

Klassíski hummusinn er kremkennd blanda úr kjúklingabaunum, tahini, sítrónu og hvítlauk. Hollur, einfaldur og góður sem ídýfa með grænmeti eða sem smyrja á vefjur og samlokur.

Skolið kjúklingabaun í sigti undir köldu vatni og léttþurrkið. Takið hýðið af hvítlauknum. Setjið kjúklingabaunirnar í matvinnsluvél ásamt tahini, hvítlauk og helmingnum af vatninu.
Blandið öllu vel saman og bætið olíunni hægt og rólega út í. Setjið síðan sítrónusafa og salt.
Bætið restinni af vökvanum út í þar til hummusinn verður mjúkur og kremkenndur – en samt nægilega þykkur til að smyrja. Oft þarf að aðlaga vökvamagn í hummus og getur það farið eftir blöndurum og matvinnsluvélum hversu mikið þarf. Smakkið til með tahini, olíu, vatni eða sítrónusafa.
Hægt er að leika sér með hummusinn með því að bæta við bragðgóðum kryddum og skreyta með olíu, paprikudufti og steinselju. Hummus passar einstaklega vel með frækexi, rúgbrauði og niðurskornu grænmeti.
Hummus geymist best í loftþéttu íláti í kæli í allt að 4–5 daga.