Skyrskál með kanilmúslí, berjum, granateplum og myntu

graenmetis
kjotlaust

Fullkominn kostur fyrir hollan morgunmat, millimál eða léttan eftirrétt!

Kornvörur sem innihalda glúten,
Mjólk og mjólkurafurðir (þ.m.t. laktósi),
Hnetur og afurðir úr þeim,
Skyrskál með kanilmúslí, berjum, granateplum og myntu

Aðferð

  1. Hitið ofninn í 160°C.

  2. Kanilmúslí

  3. Saxið valhnetur gróft og setjið á ofnplötu ásamt sólblómafræjum og höfrum. Bakið í ofni í um 10 til 15 mínútur þar til allt er gyllt að lit. Hrærið nokkrum sinnum upp í blöndunni svo hún dökkni ekki of mikið. 

  4. Takið múslíblönduna úr ofninum og setjið í skál og blandið saman við kanil, hampfræ, chiafræ og trönuber.

  5. Samsetning

  6. Blandið skyri saman við smá vatn í stórri skál ásamt vanillu og hunangi. Hrærið vel saman.

  7. Skerið granatepli í tvennt og takið fræin úr og setjið í skál. Passið að allt hvítt sé tekið burt þar sem það er mjög biturt á bragðið.

  8. Berið skyrið fram ásamt kanilmúslínu og ferskum eða frosnum berjum að eigin vali. Toppið með granateplakjörnum og ferskri myntu. 

Einnig má nota tilbúna múslíblöndu eða granóla að eigin vali. 

Næringargildi
User Image

Höfundur

Gott og einfalt
Gott og einfalt

Innihald

2 skammtar
20 
g
Valhnetur
25 
g
Sólblómafræ
40 
g
Haframjöl
0.2 
tsk
Kanill
g
Hampfræ
g
Chiafræ
10 
g
Trönuber
500 
ml
Skyr (hreint)
msk
Vatn (valfrjálst - til að þynna)
tsk
Vanilla
msk
Hunang (eða hlynsíróp, eftir smekk)
g
Granatepli
25 
g
Ber (að eigin vali - frosin eða fersk)
g
Mynta
Bæta á innkaupalista
Bæta á vikumatseðil
Prenta uppskrift
Afrita slóð

Slóð hefur verið afrituð

Senda í tölvupósti