„Best fyrir“ & „síðasti notkunardagur“
Margir velta fyrir sér hvort matvæli séu örugg eftir að dagsetning á umbúðum rennur út. Að skilja muninn á „best fyrir“ og „síðasti notkunardagur“ getur sparað peninga, minnkað matarsóun og aukið öryggi.
Reglulegar máltíðir hjálpa börnum að viðhalda orku yfir daginn og takast betur á við verkefnin dagsins. Gott skólanesti er þar mikilvægt en það þarf þó hvorki að vera flókið né mikið. En hvað er gott að hafa í nestisboxinu?
Ávextir, ber eða grænmeti eru góður grunnur að morgunnesti.
Veljið ávexti, ber eða grænmeti eftir smekk barnanna, til dæmis:
Prófið ykkur gjarnan áfram með ólíka liti og tegundir og leyfið barninu jafnvel að taka þátt í valinu.
Börn eru ólík og þarfir þeirra sömuleiðis. Sum borða lítið í morgunmat eða verða svöng fyrir hádegismat og gætu því þurft matarmeira nesti. Auka nesti getur einnig hentað á löngum skóladögum eða þegar sund, íþróttir eða æfingar eru á dagskrá.
Gott er að hafa þessa þumalputtareglu að leiðarljósi þegar útbúið er matarmeira nesti:
ávöxtur, grænmeti eða ber + heilkornavara + próteinríkur biti
Heppilegir heilkornavalkostir geta til dæmis verið hafrar, rúgbrauð, heilkornabrauð, heilkornaflatkökur, hrökkbrauð, heilkornakex og heilkornavefjur.
Próteinríkir valkostir geta líka gert nestið matarmeira. Þar má til dæmis nefna ost, egg, skyr, kotasælu, hummus, edamame-baunir, túnfisk, harðfisk og kalkúnaálegg.
Ýmsar góðar nestishugmyndir má finna hér.
Sparinesti er tilbreyting frá venjulegu nesti og er aðeins ætlað við sérstök tækifæri. Skólinn lætur yfirleitt vita þegar nemendur mega taka slíkt nesti með til dæmis fyrir jól eða á hátíðisdögum.
Ávextir og grænmeti geta að sjálfsögðu verið hluti af sparinestinu. Fylgið ávallt leiðbeiningum skólans um hvað er leyfilegt. Gosdrykkir, orkudrykkir, sætabrauð og sælgæti eiga hins vegar ekki heima í venjulegu skólanesti.
Fylgið ávallt reglum skólans um hnetur og önnur matvæli sem geta valdið ofnæmisviðbrögðum. Margir skólar eru hnetulausir og stundum þarf einnig að taka tillit til annars ofnæmis hjá nemendum.
Lagið stærð og lögun matarins að aldri og færni yngri barna. Skerið til dæmis vínber og litla tómata eftir endilöngu og skerið hráar gulrætur í mjóa strimla.
Rúsínur, döðlur og aðrir þurrkaðir ávextir eru sætir og orkuríkir bitar og henta því best í litlu magni af og til.
Síðast en ekki síst er gott að muna eftir vatnsbrúsanum – vatn svalar þorstanum best og er tilvalinn hversdagsdrykkur með nestinu.