Falafel

vegan
graenmetis
kjotlaust

Bragðgóðar bollur, stökkar að utan og mjúkar að innan. Þær passa vel í vefjur, pítur, salöt – eða einfaldlega einar og sér.

Sesamfræ og afurðir úr þeim,
Falafel

Aðferð

  1. Skolið brokkolíið og skerið það í grófa bita. Gufusjóðið í um 5–10 mínútur. Þið getið líka skorið brokkolíið í smærri bita og sett það hrátt í matvinnsluvélina, sjá næsta skref.

  2. Skolið kjúklingabaunirnar vel undir köldu vatni. Afhýðið lauk og hvítlauk og skerið í grófa bita. Skolið steinselju.

  3. Setjið kjúklingabaunirnar í matvinnsluvél ásamt lauk, hvítlauk, steinselju, ertum, soðnu eða hráu brokkolíi, broddkúmeni og smá salti. Maukið þar til úr verður grófur massi.

  4. Mótið massann í litlar kúlur, með lítilli ísskeið, skeið eða með blautum höndum. Passið að kúlurnar séu þétt pressaðar svo þær haldi lögun sinni við steikingu eða bökun.

  5. Hitið olíu á pönnu og steikið bollurnar við meðalháan hita í 4–6 mínútur, eða þar til þær eru gullinbrúnar. Þið getið líka ofnbakað þær við 180°C með blæstri í 10 mínútur og steikt létt á pönnu í 1–2 mínútur eftir það fyrir stökkari áferð.

  6. Gott er að leggja eldhúsrúllubréf á lítinn disk og setja bollurnar á það strax eftir steikingu svo fitan renni aðeins af þeim.

Það er upplagt að gera stóran skammt af þessari uppskrift og frysta það sem ekki er notað strax. Falafel má hita beint úr frysti annaðhvort á pönnu eða í ofni við 160°C í 10–15 mínútur.

Falafel passar sérstaklega vel í pítur, vefjur eða salöt, ásamt hummus eða góðri jógúrt- eða pítusósu.

Næringargildi
User Image

Höfundur

Gott og einfalt
Gott og einfalt

Innihald

2 skammtar
100 
g
Brokkolí (ferskt eða frosið)
150 
g
Kjúklingabaunir (úr dós eða þurrkaðar og soðnar)
0.5 
stk
Laukur
rif
Hvítlaukur
20 
g
Steinselja (fersk)
50 
g
Ertur (frosnar)
tsk
Broddkúmen (cumin)
0.25 
tsk
Salt
msk
Olía (t.d. ólífu- eða repjuolía)
Bæta á innkaupalista
Bæta á vikumatseðil
Prenta uppskrift
Afrita slóð

Slóð hefur verið afrituð

Senda í tölvupósti