Linsubaunahummus

vegan
graenmetis
kjotlaust

Ljúffengur, kremkenndur og trefjaríkur hummus úr linsubaunum - tilvalinn sem millimál með brauði eða grænmeti eða sem meðlæti.

Sesamfræ og afurðir úr þeim,
Jarðhnetur og afurðir úr þeim,
Mjólk og mjólkurafurðir (þ.m.t. laktósi),
Hnetur og afurðir úr þeim,
Linsubaunahummus

Aðferð

  1. Skolið linsubaunirnar vel í sigti undir köldu vatni. Setjið þær síðan í pott með tveimur hlutum af vatni á móti einum hluta af baunum og bætið við smá salti. Látið suðuna koma upp og sjóðið við miðlungshita í 10–15 mínútur eða þar til baunirnar eru orðnar mjúkar og mest af vatninu hefur gufað upp.

  2. Afþýðið og saxið hvítlaukinn og kreistið safann úr sítrónunni.

  3. Setjið soðnu linsubaunirnar í matvinnsluvél. Bætið við söxuðum hvítlauk, sítrónusafa, hnetusmjöri, olíu, broddkúmeni, laukdufti, kóríanderdufti, reyktri papriku, cayennepipar og smá salti. Maukið þar til hummusinn verður silkimjúkur.

  4. Smakkið til með kryddum og bætið við olíu, sítrónusafa eða vatni eftir þörfum til að ná æskilegri áferð.

  5. Setjið hummusinn í skál og toppið með því sem er við hendina.

Það er hægt að toppa hummusinn með ýmsu eins t.d. fínt skornum rauðlauk, ólífum, tómat- og agúrkusneiðum, fínsaxaðri basilíku og muldum fetaosti. Einnig er hægt að setja ferska steinselju eða kóríander, paprikukryddi og smá olíu eða smyrja honum beint á heilhveitibrauðsneiðina eða vefjuna. 

Næringargildi
User Image

Höfundur

Gott og einfalt
Gott og einfalt

Innihald

4 skammtar
70 
g
Linsubaunir (þurrar, t.d. rauðar)
0.25 
tsk
Salt
rif
Hvítlaukur (eftir smekk)
0.5 
stk
Sítróna (safinn - eftir smekk)
msk
Hnetusmjör (eða tahini)
msk
Olía (t.d. ólífuolía eða kókosolía)
0.5 
tsk
Broddkúmen
0.25 
tsk
Laukduft (valkvætt)
0.25 
tsk
Kóríanderduft (valkvætt)
0.1 
tsk
Reykt paprika (valkvætt)
0.1 
tsk
Cayenne pipar (valkvætt)

1 g þurrar linsur eru um 2,6 g soðnar linsur.

Bæta á innkaupalista
Bæta á vikumatseðil
Prenta uppskrift
Afrita slóð

Slóð hefur verið afrituð

Senda í tölvupósti