„Best fyrir“ & „síðasti notkunardagur“
Margir velta fyrir sér hvort matvæli séu örugg eftir að dagsetning á umbúðum rennur út. Að skilja muninn á „best fyrir“ og „síðasti notkunardagur“ getur sparað peninga, minnkað matarsóun og aukið öryggi.
Stundum er haldið fram að hafrar séu óhollir, að þeir valdi þyngdaraukningu vegna kolvetna, hækki blóðsykur mikið, geti valdið uppþembu eða öðrum meltingartruflunum og innihaldi bæði glúten og sykur. En er eitthvað til í því?
Hafrar eru mjög næringarríkir. Þeir innihalda trefjar, B- og E-vítamín og steinefni eins og járn, magnesíum, sink og selen. Hafrar innihalda líka andoxunarefni sem geta stutt við líkamsstarfsemi og haft bólgueyðandi áhrif.
Um 60% af orku hafra kemur frá kolvetnum og því teljast þeir kolvetnarík fæða. Hafrar innihalda ekki viðbættan sykur, en hafa náttúrulegar sykurtegundir sem eru hluti af kolvetnunum.
Kolvetnin í höfrum eru að mestu flókin, sem þýðir að þau meltast hægar og veita jafnari og stöðugri orku en einföld kolvetni. Þetta tengist meðal annars háu trefjainnihaldi hafra.
Hafrar eru sérstaklega trefjaríkir og innihalda meðal annars beta-glúkan, sem er vatnsleysanleg trefja. Slíkar trefjar geta stutt við hjartaheilsu og hjálpað til við að halda blóðsykri stöðugum.
Glúten er prótein sem finnst til dæmis í hveiti. Hafrar eru náttúrulega glútenlausir. Þeir geta þó mengast við vinnslu ef þeir eru framleiddir á sama stað og hveiti.
Því eru til sérstakir hafrar sem eru merktir glútenlausir fyrir þá sem þurfa að forðast glúten.
Hafrar eru glútenlausir – en veljið merktar vörur ef þið þurfið að forðast glúten.
Varðandi þyngdaraukningu er mikilvægt að hafa í huga að engin einstök næringarefni, þar á meðal kolvetni, valda sjálfkrafa þyngdaraukningu. Þyngdaraukning á sér stað þegar orkuneysla er meiri en orkuþörf yfir lengri tíma – sama hvaðan orkan kemur.
Trefjar, eins og þær sem finnast í höfrum, geta hins vegar stutt við þyngdarstjórnun. Þær auka seddu, hjálpa til við að halda blóðsykri stöðugum og styðja við meltingu.
Það er heildarmataræðið sem skiptir mestu máli – ekki eitt hráefni.