
„Best fyrir“ & „síðasti notkunardagur“
Margir velta fyrir sér hvort matvæli séu örugg eftir að dagsetning á umbúðum rennur út. Að þekkja muninn á „best fyrir“ og „síðasti notkunardagur“ getur sparað peninga, minnkað matarsóun og aukið öryggi.

Hreyfing og næring fara vel saman – og nú hafa Gott og einfalt og Íþrótta- og Ólympíusamband Íslands (ÍSÍ) sameinað krafta í tengslum við átakið Hjólað í vinnuna.
Markmiðið er að gera fólki auðveldara að velja bæði hreyfingu og hollan mat í dagsins önn. Með einföldum uppskriftum, vikumatseðlum og hvetjandi skilaboðum viljum við styðja við góðar daglegar venjur sem nýtast öllum.
Í tilefni af Hjólað í vinnuna hefur ÍSÍ sett saman sérstakan vikumatseðil á Gott og einfalt með hugmyndum að morgunmat, hádegismat, kvöldmat og millimálum fyrir alla daga vikunnar. Þar er lögð áhersla á næringarríkar og einfaldar máltíðir sem hjálpa til við að halda góðri orku yfir daginn og gefa orku fyrir hjólatúrinn. Hægt er að púsla matseðlinum saman eftir hentisemi.
Samstarfið byggir á einfaldri hugsun – lítil skref skipta máli. Hvort sem við hjólum í vinnuna, skipuleggjum vikuna með góðum mat eða prófum nýja næringarríka uppskrift, þá getur margt smátt haft mikil áhrif á heilsu og vellíðan.