„Best fyrir“ & „síðasti notkunardagur“
Margir velta fyrir sér hvort matvæli séu örugg eftir að dagsetning á umbúðum rennur út. Að skilja muninn á „best fyrir“ og „síðasti notkunardagur“ getur sparað peninga, minnkað matarsóun og aukið öryggi.
Trefjar eru efni sem finnast í mat úr jurtaríkinu. Þær eru meðal annars í heilkorni, grænmeti, ávöxtum, berjum, baunum, linsum, hnetum og fræjum.
Líkaminn meltir trefjar ekki á sama hátt og önnur næringarefni. Þær berast því að mestu áfram í ristilinn. Þar nýta bakteríur hluta þeirra sem næringu en aðrar fara að mestu óbreyttar í gegnum meltingarveginn.
Trefjum er gjarnan skipt í tvær tegundir. Flest trefjarík matvæli innihalda þó blöndu af báðum tegundum.
Trefjar hafa margvísleg áhrif á líkamann og geta stutt heilsuna á ýmsa vegu.