Grænt pestó
Einfalt og bragðgott grænt pestó með basilíku, spínati og parmesan. Hentar vel með pasta, fiski, kjúklingi, kartöflum og á brauð.
Einfalt og bragðgott grænt pestó með basilíku, spínati og parmesan. Hentar vel með pasta, fiski, kjúklingi, kartöflum og á brauð.
Afhýðið hvítlauk. Rífið parmesan niður með rifjárni ef þörf er á.
Setjið hvítlauk, parmesan og furuhnetur í lítinn hakkara eða blandara og maukið gróflega.
Skolið basilíku og spínat vel og hristið mesta vatnið af. Skerið sítrónu í tvennt og kreistið sítrónusafa í skál.
Bætið basilíku, spínati, sítrónusafa og olíu í hakkarann. Maukið þar til pestóið hefur blandast vel saman.
Smakkið til með pipar. Ef pestóið er of þykkt má bæta við örlitlu vatni eða meiri olíu.
Berið fram strax eða geymið í kæli þar til á að nota.
Í stað basilíku má nota steinselju eða blanda saman öðrum kryddjurtum eins og smá oreganó eða timían. Einnig má skipta furuhnetum út fyrir sólblómafræ eða jafnvel graskersfræ, kasjúhnetur eða blöndu af öllu. Parmesan má síðan skipta út fyrir Grana Padano ost eða jafnvel næringarger ef þið viljið vegan útgáfu.
Ef notaður er töfrasproti getur verið gott að stoppa nokkrum sinnum og skafa niður af hliðum skálarinnar svo allt blandist vel saman. Einnig er hægt að stappa öllu saman með grófari áferð í mortéli.