Ofnbakaðir fiskfingur með tartarsósu
Sígildur skyndibiti með hollustutvisti - sem tekur næstum enga stund að elda.

Sígildur skyndibiti með hollustutvisti - sem tekur næstum enga stund að elda.

Hitið ofninn í 200°C.
Skerið roð- og beinlaust fiskiflak í 2-3 cm breiðar ræmur þvert yfir þannig að úr verða miðlungslangar lengjur.
Setjið þurrt brauð í matvinnsluvél eða blandara og látið ganga þar til það verður að grófri mylsnu. Hellið mylsnunni í djúpan disk.
Setjið hveiti í annan djúpan disk. Bætið helmingnum af salti og pipar út í og blandið saman.
Brjótið egg á þriðja diskinn og léttþeytið með gaffli.
Leggið bökunarpappír á ofnplötu og hafið tilbúna til að setja fiskfingurna á.
Veltið fisknum fyrst upp úr kryddaða hveitinu, síðan upp úr egginu og loks upp úr brauðmylsnunni. Þrýstið fiskbitunum létt ofan í mylsnuna og raðið þeim svo á bökunarplötuna. Dreifið olíu jafnt yfir.
Bakið fiskfingurna í miðjum ofni í um 10 mínútur, eða þar til þeir eru eldaðir í gegn og mylsnan stökk.
Skolið steinselju. Kreystið safa úr sítrónu.
Setjið steinselju, sítrónusafa, skyr, sýrðan rjóma, sinnep, smágúrkur og kapers í matvinnsluvél eða blandara. Kryddið með restinni af salti og pipar, eða eftir smekk. Maukið vel saman.
Þynnið sósuna eftir smekk með nokkrum matskeiðum af köldu vatni.
Bæta má kryddum eins og paprikudufti eða hvítlauksdufti út í brauðraspinn fyrir meira bragð.
Sem meðlæti er upplagt að bjóða upp á niðurskornar, ferskar eða gufusoðnar, gulrætur, gúrkur og paprikur eða ofnbakað grænmeti.