
„Best fyrir“ & „síðasti notkunardagur“
Margir velta fyrir sér hvort matvæli séu örugg eftir að dagsetning á umbúðum rennur út. Að skilja muninn á „best fyrir“ og „síðasti notkunardagur“ getur sparað peninga, minnkað matarsóun og aukið öryggi.

Skólanesti er mikilvægur hluti dagsins og hjálpar börnum að halda orku og einbeitingu milli morgunmatar og hádegis.
Gott nesti ætti því að innihalda blöndu af kolvetnum, próteinum, hollri fitu og trefjum.
Það getur verið skemmtilegt að leyfa barninu að taka þátt í að velja hvað fer í nestisboxið. Til dæmis má setjast saman niður um helgar og skipuleggja nestið fyrir vikuna.
Grunnurinn að góðu nesti getur verið heilkornavara eins og brauð, flatkaka, kex eða pasta með að minnsta kosti 5 g trefjum í hverjum 100 g. Slík matvæli hjálpa til við að veita jafnari orku yfir daginn.
Gott er að bæta við próteinríku áleggi, t.d. eggi, osti, kalkúnaáleggi eða hummus, sem gerir nestið bæði mettandi og næringarríkt.
Ávextir, ber og grænmeti eru tilvalin í nestisboxið. Þau bæta við trefjum, vítamínum og steinefnum og gera nestið litríkara og fjölbreyttara.
Ávextir, ber og grænmeti eru frábært nesti. Vatn er besti svaladrykkurinn.
Hafið í huga að margir skólar eru hnetulausir og því gott að sleppa hnetum og hnetusmjöri í nestisboxið.
Sumir skólar óska einnig eftir að ákveðin matvæli sem geta valdið ofnæmi séu ekki tekin með í skólann. Mikilvægt er að virða þær reglur og fylgja leiðbeiningum skólans hverju sinni.