
„Best fyrir“ & „síðasti notkunardagur“
Margir velta fyrir sér hvort matvæli séu örugg eftir að dagsetning á umbúðum rennur út. Að skilja muninn á „best fyrir“ og „síðasti notkunardagur“ getur sparað peninga, minnkað matarsóun og aukið öryggi.

Grunnurinn að góðri smoothieskál er oft frosinn banani sem gefur mjúka og rjómakennda áferð. Frosin ber og ávextir bæta við lit og fersku bragði, en skyr, jógúrt eða plöntujógúrt gefa prótein og fyllingu.
Frosnir bananar og ber gefa smoothieskálum mjúka áferð, fallega liti og ferskt bragð.
Það er gott að skera niður vel þroskaða banana sem annars færu til spillis og geyma í poka eða boxi í frysti fyrir næstu smoothieskál. Frosin ber og ávextir eins og bláber, jarðarber, mangó eða ananas henta líka vel. Ef blandarinn á erfitt með frosin hráefni má bæta smá vökva út í, til dæmis vatni, mjólk eða kókosvatni.
Avókadó, kasjúhnetur og hnetusmjör geta gert skálina þéttari og gefið góðar fitusýrur. Einnig er hægt að bæta við höfrum, chiafræjum eða öðrum fræjum til að fá meiri trefjar og fyllingu. Ef þið viljið meira prótein má bæta við til dæmis silkitofu, mysupróteini, kollageni eða jafnvel soðnum kjúklingabaunum.
Ávextir gefa náttúrulega sætu en einnig má bæta við bragði með kanil, kakói, vanillu, döðlum eða smá hunangi.
Hafrar, chiafræ, hnetusmjör og fræ geta bætt bæði trefjum og góðri fitu við skálina. Einnig er hægt að lauma grænmeti í skálina, eins og spínati, kúrbít eða blómkáli, án þess að það breyti bragðinu mikið.
Skemmtilegt er að toppa smoothieskálar með ferskum ávöxtum, berjum, hnetum og fræjum sem bæta bæði lit, bragð og áferð.
Kókosflögur, granóla, kakónibbur eða smátt saxað dökkt súkkulaði geta gefið skálinni stökkari áferð. Einnig er gott að setja smá hnetusmjör yfir skálina.
Raðið hráefnunum fallega í skálina og leyfið litunum að njóta sín. Notið skál með háum köntum til að láta listaverkið njóta sín sem best.
Það er gaman að prófa mismunandi hráefni og álegg. Hér eru nokkrar einfaldar hugmyndir að smoothieskálum.
Rauð skál
Græn skál
Uppskrift af svipaðri grænni smoothieskál.
Súkkulaðiskál
Hér er uppskrift af svipaðri súkkulaðiskál.
Bláberjadraumur
Trópísk skál
Hér er uppskrift af gulri smoothieskál.
Bleik skál