
„Best fyrir“ & „síðasti notkunardagur“
Margir velta fyrir sér hvort matvæli séu örugg eftir að dagsetning á umbúðum rennur út. Að skilja muninn á „best fyrir“ og „síðasti notkunardagur“ getur sparað peninga, minnkað matarsóun og aukið öryggi.

Til að sjóða pasta þannig að það verði fullkomlega „al dente“ þarf að fylgja nokkrum einföldum en mikilvægum skrefum. Rétt magn af vatni, nægur suðutími og góð tímasetning skipta öllu máli þegar kemur að áferð og bragði. Hér eru helstu skrefin sem hjálpa til við að tryggja að pastað verði hæfilega soðið – hvorki of mjúkt né of hart.
1. Vökvamagn
Setjið vatn í hæfilega stóran pott – um 1 lítra fyrir hver 100 g af pasta. Dæmi: Fyrir 200 g af pasta þarf um 2 lítra af vatni.
2. Sjóðið vatnið
Stillið helluna á hæsta hita og leyfið vatninu að ná suðu.
3. Bætið salti í vatnið
Bætið salti út í vatnið meðan það er að hitna. Notið um ½ teskeið af salti í hvern lítra af vatni. Saltið bætir bragðið og hægt er að minnka eða auka magnið eftir smekk og eftir því hvernig sósa er borin fram með pastanu.
4. Bætið pastanu í pottinn
Þegar vatnið sýður bætið pastanu varlega út í pottinn. Hrærið strax svo pastað festist ekki saman. Setjið lok á pottinn en hafið smá glufu og lækkið hitann í meðallágan.
Fylgist með að ekki sjóði upp úr. Ef það gerist má stækka glufuna á lokinu eða lækka hitann örlítið meira.
5. Sjóðið samkvæmt leiðbeiningum á pakkningum
Pasta þarf oftast að sjóða í 9–12 mínútur. Heilhveitipasta þarf yfirleitt aðeins lengri suðu en hvítt pasta. Stillið tímamæli og forðist að sjóða pastað of lengi, því þá verður það seigt og klístrað.
6. Smakkið í lokin
Sumir kasta pastanu á vegg til gamans til að sjá hvort það haldist á – en betra er að smakka það. Smakkið þegar tæplega 1 mínúta er eftir af suðutímanum. Pasta á að vera:
7. Hellið vatninu af
Slökkvið undir pottinum og hafið sigti klárt við vaskinn. Sigtið pastað varlega þannig að vatnið renni í vaskinn. Þar sem vatnið er mjög heitt er gott að tveir vinni verkið saman eða að nota sigti sem situr vel á vaskinum. Börn ættu helst ekki að sigta pasta ein því hætta er á að brenna sig.
Berið pastað fram á diski og njótið með fersku grænmeti, próteingjafa, osti að eigin vali og góðri sósu. Hér á síðunni má líka finna ýmsar uppskriftir af góðum pastaréttum sem gaman er að prófa.