
Grænmetis- og ávaxtabakkar
Til að njóta á heilsusamlegri hátt er til að mynda hægt að velja léttari valkosti eða útfæra nýjar uppskriftir þar sem grænmeti, ávextir og heilkorna vörur ásamt baunum eru í forgrunni.

Heilbrigð þarmaflóra er mikilvæg þegar kemur að meltingu, ónæmiskerfinu, hormónajafnvægi og andlegri líðan. Hlutverk hennar er að verja okkur gegn öðrum óvelkomnum örverum sem geta valdið sýkingum og öðrum vandamálum. Við fæðingu mótast samsetning þarmaflórunnar að hluta af erfðamengi okkar, en síðan þróast hún alla ævi, allt fram á okkar síðasta dag.
Líkaminn okkar inniheldur að minnsta kosti jafn margar örverur og hann inniheldur frumur og eru þær örverur að langmestu leyti staðsettar í þörmunum. Samfélag þessara örvera í þörmunum kallast þarmaflóra eða örveruflóra (e. gut microbiota) .
Heilbrigð þarmaflóra styrkir t.a.m. ónæmiskerfið okkar, en um 70% ónæmisfrumna eru staðsettar í meltingarveginum (1).
Þarmaflóran er ólík í okkur öllum og er nokkursskonar auðkenni, en um ⅓ þarmaflórunnar er svipuð milli einstaklinga, en ⅔ hluti einstaklingsbundinn (2). Þegar þarmaflóran er í jafnvægi hjálpar hún líkamanum að brjóta niður fæðu, verja okkur gegn skaðlegum örverum og framleiða vítamín og önnur gagnleg efni. Rannsóknir sýna að heilbrigð þarmaflóra getur dregið úr bólgum, styrkt ónæmiskerfið og jafnvel haft jákvæð áhrif á skap og einbeitingu (3, 4).
Mataræðið spilar stærstan þátt í samsetningu þarmaflórunnar auk ýmissa umhverfisþátta. Til að hlúa að heilbrigðri þarmaflóru er því mikilvægt að borða fjölbreyttan og trefjaríkan mat auk gerjaðra matvæla.
Grænmeti, ávextir, baunir, hnetur, fræ og heilkorna matvæli eru sérstaklega góðir kostir, því þeir innihalda trefjar sem næra góðgerla í þörmunum. Slíkar trefjar kallast prebiotics eða gerlafæði og er það fóður fyrir góðu örverurnar.
Gerjuð matvæli, svo sem hreint jógúrt, súrsað grænmeti, sumir hvítmygluostar, súrdeig, gerjaðar sojaafurðir (eins og tofu og tempeh) og kombucha, innihalda síðan góðgerlana sjálfa (probiotics) – það eru lifandi örverur sem geta stutt við jafnvægi í þarmaflórunni og eflt meltingarheilsu.
Jafnvægið verður enn betra þegar neysla á sykri, unnum kjötvörum og mikilli gervisætu er í hófi, þar sem slík fæða getur haft neikvæð áhrif á þarmaflóruna hjá sumum einstaklingum.
Sýklalyf geta síðan raskað flórunni, svo mikilvægt er að hlúa að þarmaflórunni og byggja hana aftur upp með næringraríkri fæðu og góðgerlum eftir veikindi og sýklalyfjanotkun.
Regluleg hreyfing, nægur svefn og streitulosun geta síðan stutt við heilbrigða örveruflóru í þörmunum og því mikilvægt að huga að þeim þáttum samhliða.
Þarmaflóran getur því verið ýmist gagnleg fyrir heilsuna okkar ef hún er í jafnvægi en getur sömuleiðis aukið líkur á ýmsum sjúkdómum ef hún er óhagstæð eða í ójafnvægi. Því er gott ráð að hlúa vel að henni svo að hún geti stutt við okkur út ævina.