Fiskibollur

kjotlaust
fiskur

Einfalt og bragðgott val - klassísk hversdagsmáltíð sem hentar allri fjölskyldunni.

Stór hluti undirbúningstíma er bið á meðan hakkið tekur sig í kæli (30-60 mínútur).

Fiskur og fiskafurðir,
Kornvörur sem innihalda glúten,
Mjólk og mjólkurafurðir (þ.m.t. laktósi),
Egg og afurðir úr þeim,
Fiskibollur

Aðferð

  1. Setjið ýsuhakk, heilhveiti, salt, pipar, egg og súrmjólk í rúmgóða skál og hrærið saman með höndum eða sleif.

  2. Skolið gulrætur og rífið með rifjárni. Takið utan af lauk og hvítlauk og saxið smátt. Bætið öllu saman við hakkblönduna og hrærið vel þar til hráefnin hafa dreifst jafnt.

  3. Setjið blönduna í kæli í 30 til 60 mínútur.

  4. Skolið og saxið dill og hrærið saman við blönduna. 

  5. Mótið bollur með matskeið úr fiskihakksblöndunni. Steikið bollurnar í olíu á pönnu í um 7 til 8 mínútur á hvorri hlið.

Berið fiskibollurnar gjarnan fram með soðnum kartöflum, tómötum, soðnum rófum, gulrótum og brokkolíi. Tilvalið er að útbúa súrmjólkur- eða jógúrtsósu sem braðbæta má t.d. með salti, pipar, dijon sinnepi og graslauk.

Næringargildi
User Image

Höfundur

Af bestu lyst
Af bestu lyst

Innihald

2 skammtar
250 
g
Ýsa (hökkuð)
msk
Heilhveiti
0.25 
tsk
Salt
0.25 
tsk
Pipar
0.5 
stk
Egg
75 
ml
Súrmjólk (hrein og létt - eða t.d. hrein jógúrt)
0.5 
stk
Gulrætur
rif
Hvítlaukur
0.5 
stk
Laukur (lítill)
msk
Dill (ferskt, nota minna ef þurrkað)
0.75 
msk
Olía
Bæta á innkaupalista
Bæta á vikumatseðil
Prenta uppskrift
Afrita slóð

Slóð hefur verið afrituð

Senda í tölvupósti