
„Best fyrir“ & „síðasti notkunardagur“
Margir velta fyrir sér hvort matvæli séu örugg eftir að dagsetning á umbúðum rennur út. Að skilja muninn á „best fyrir“ og „síðasti notkunardagur“ getur sparað peninga, minnkað matarsóun og aukið öryggi.

Íslenskar ráðleggingar um mataræði frá embætti landlæknis hafa um árabil lagt áherslu á að borða næringarríkan og fjölbreyttan mat í samræmi við þarfir líkamans. Ráðleggingarnar byggja á vísindalegum rannsóknum og hafa það markmið að stuðla að betri heilsu og vellíðan almennings.
Megináhersla er að borða fjölbreyttan mat í hæfilegu magni.
Áhersla er lögð á að auka neyslu á grænmeti, ávöxtum, heilkornavörum og fiski og að velja oftar fituminni mjólkurvörur og hollar fitur.
Mælt er með að borða grænmeti og ávexti sem hluta af flestum máltíðum dagsins. Grænmeti, ávextir og ber innihalda trefjar, vítamín og steinefni sem líkaminn þarf á að halda. Heilkornavörur eins og rúgbrauð, hafrar og gróft pasta innihalda einnig trefjar og geta stuðlað að betri meltingu og jafnari orku yfir daginn.
Fiskur gegnir mikilvægu hlutverki í íslensku mataræði. Ráðlagt er að borða fisk tvisvar til þrisvar í viku, bæði feitan og magran, þar sem hann er góð uppspretta próteina, joðs og omega-3 fitusýra.
Hvatt er til þess að fá prótein úr fjölbreyttum matvælum, svo sem fiski, kjöti, baunum, eggjum, tofu, tempeh, skyri eða öðrum próteinríkum mjólkurvörum.
Reglulegt máltíðarmynstur, um 3 máltíðir og 1-2 millimál á dag, getur hjálpað til við að viðhalda jafnari orku yfir daginn.
Vatn er besti svaladrykkurinn fyrir fólk á öllum aldri. Best er neyta sætra drykkja í sem mestu hófi og sama á við um unnar kjötvörur og önnur mikið unnin matvæli. Hvatt er til þess að draga úr neyslu á sykri, salti og mettaðri fitu. Þeir sem kjósa að fá sér sykur ættu að neyta hans í hófi. Einnig er mælt með að saltneysla fari ekki yfir 6 g á dag og að mettuð fita sé innan við 10% af daglegri orkuþörf.
Næringarráðleggingar embættis landlæknis leggja ekki áherslu á boð og bönn heldur skynsamlegt jafnvægi og fjölbreytt mataræði.
Á Gott og einfalt má til að mynda finna einfaldar og hollar uppskriftir sem allar taka mið af ráðleggingum um mataræði frá embætti landlæknis.
Á vef embættis landlæknis má lesa ráðleggingar um mataræði í heild sinni.