
Grænmetis- og ávaxtabakkar
Til að njóta á heilsusamlegri hátt er til að mynda hægt að velja léttari valkosti eða útfæra nýjar uppskriftir þar sem grænmeti, ávextir og heilkorna vörur ásamt baunum eru í forgrunni.

Jólin eru tími ljóss, friðar og hefða — tími þar sem við njótum þess að elda, baka og skapa góðar minningar með fólkinu sem okkur þykir vænt um. Jólaundirbúningurinn sjálfur – mandarínulyktin, bakstursilmurinn og heitt kakó með rjóma á aðventunni – eru samverustundir sem færa okkur ró, gleði og hlýju.
Hefðbundinn jólabakstur á réttilega sinn stað yfir hátíðirnar, en það getur líka verið skemmtilegt að blanda saman hefðum og nýjungum með örlítið hollari útfærslum. Með einföldum breytingum, eins og að bæta við trefjum eða minnka sykurinn aðeins, er hægt að gera uppskriftir næringarríkari án þess að fórna bragði eða stemmingu.
Við getum leyft hluta af bakstrinum að halda sér alveg hefðbundnum, á meðan við gerum hinn hlutann aðeins næringarmeiri – þannig verður jólabaksturinn bæði fjölbreyttari og hollari, en áfram jafn ljúffengur og áður. Vert er líka að nefna að ávextir eru frábærir sem sætur biti yfir hátíðarnar.
En með því að skipta út hluta af hvíta hveitinu fyrir trefjaríkara mjöl má auka trefjainnihald uppskrifta og þannig styðja við meltingu, þarmaflóru og jafnari orku yfir daginn. Heilkornamjöl inniheldur talsvert meira af trefjum en hefðbundið hveiti, sem skýrir hvers vegna slík skipti geta skipt máli fyrir heilsuna.
Hér eru nokkur dæmi um trefjainnihald mismunandi mjöltegunda og hvernig má blanda þeim saman við hvítt hveiti:
Trefjar í mismunandi mjöltegundum (per 100 g):
Í sumum kökum er einnig hægt að prófa sig áfram með kókosmjöl og möndlumjöl eins og í þessari súkkulaðiköku með avókadói og döðlum.
Í mörgum smáköku-, köku- og konfektuppskriftum má minnka sykur um 20–30% án þess að bragð eða áferð breytist mikið.
Sykurinn í þessum
hnetusmjörskökum
hefur t.a.m. verið minnkaður úr 130 g í 100 g og smakkast samt einstaklega vel. Mælum með að prófa.
Stundum geta smákökurnar þó orðið aðeins mýkri en ef markmiðið er að halda þeim stökkum þrátt fyrir minni sykur, þá má einfaldlega prófa að fletja þær þynnra út – þá ættu þær að verða stökkari þótt sykurmagnið verði lægra.
Einnig má í mörgum uppskriftum skipta 40–50% af sykrinum út fyrir banana, döðlur eða eplamauk, sem gefa bæði náttúrulega sætu og meiri næringu.
Gott er síðan að hafa í huga að hnetur, örlítið salt, kakó, dökkt súkkulaði og krydd eins og kanill, vanilla, kardimommur og engifer geta dregið fram náttúrulegan sætleika og geta aukið á bragðið þótt minna sé af sykri.
Dæmi:
Hér eru sykurminni og trefjaríkari uppskriftir af bananabrauði og kryddbrauði.