„Best fyrir“ & „síðasti notkunardagur“
Margir velta fyrir sér hvort matvæli séu örugg eftir að dagsetning á umbúðum rennur út. Að skilja muninn á „best fyrir“ og „síðasti notkunardagur“ getur sparað peninga, minnkað matarsóun og aukið öryggi.
Í mörgum uppskriftum má minnka sykurinn án þess að það hafi mikil áhrif á bragðið. Best er þó að fara rólega af stað, enda gefur sykur ekki aðeins sætu heldur hefur einnig áhrif á lit, áferð, raka og endingu bakstursins.
Góð byrjun er að minnka sykurinn um 10–20% og prófa sig síðan áfram út frá bragði og áferð.
Í einföldum smákökum, formkökum og sætum brauðum má oft draga nokkuð úr sykrinum. Í marengs, svampbotnum og öðrum kökum þar sem sykur gegnir mikilvægu hlutverki í byggingu og áferð er erfiðara að minnka hann án þess að útkoman breytist. Þar er því oft best að fylgja uppskriftinni vel, þótt auðvitað megi prófa sig áfram í litlum skrefum.
Þroskaðir bananar, döðlur og eplamauk geta gefið bæði sætu og raka og henta til dæmis vel í bananabrauð, múffur og kryddbrauð. Þessi hráefni koma þó ekki alltaf beint í stað sykurs og gæti þurft að minnka annan vökva í uppskriftinni.
Hnetur, örlítið salt, kakó, dökkt súkkulaði og krydd eins og kanill, vanilla, kardimommur og engifer geta einnig aukið bragðið og dregið fram sætuna þótt minna sé af sykri.
Hvítur sykur hentar í flestar uppskriftir og stuðlar meðal annars að stökkri áferð og útbreiðslu. Púðursykur gefur dekkra og fyllra bragð og gerir baksturinn oft mýkri. Hunang og síróp gefa bæði sætu og sitt sérstaka bragð, en þar sem þau innihalda vökva er ekki alltaf hægt að nota þau í stað sykurs án þess að breyta uppskriftinni.
Hvítur sykur, púðursykur, hrásykur, kókossykur, hunang, agavesíróp og hlynsíróp teljast öll til viðbætts sykurs. Tegundirnar geta gefið ólíkt bragð, lit og áferð en engin þeirra er sjálfkrafa hollari en önnur. Fyrir heilsuna skiptir meira máli hversu mikill viðbættur sykur er notaður en hvaða tegund verður fyrir valinu.
Í mörgum smákökuuppskriftum má byrja á að minnka sykurinn um 10–20%. Stundum má minnka hann meira, en það fer eftir uppskriftinni. Smákökur með minni sykri dreifa oft minna úr sér og geta orðið minna stökkar. Þá má prófa að fletja þær aðeins meira út fyrir bakstur og fylgjast á sama tíma vel með bökunartímanum.
Þessar piparkökur og hnetusmjörskökur hafa verið aðlagaðar og innihalda minni sykur en hefðbundnar uppskriftir og geta því verið góður staður til að byrja. Prófið þær og sjáið hvernig þær falla í kramið.
Í formkökum og sætum brauðum, eins og bananabrauði og kryddbrauði, má oft minnka sykurinn um 20–30% án þess að áferðin breytist mikið.
Í sætum gerbakstri er gott að byrja á að minnka sykurinn um 10–20%. Sykurinn hefur þar áhrif á sætleika, lit, raka og áferð og því getur meiri breyting á sykurhlutfalli haft áhrif á útkomuna.
Hér eru sykurminni og trefjaríkari uppskriftir af bananabrauði og kryddbrauði.
Best er að breyta einu í einu. Prófa má að minnka fyrst sykurinn og meta síðan bragð og áferð áður en fleiri breytingar eru gerðar, til dæmis á hveitinu.
Í sumum uppskriftum getur minni sykur gert baksturinn ljósari, minna stökkan eða örlítið þurrari. Með litlum skrefum, viðmiðunum hér að ofan og slettu af þolinmæði er þó auðveldara að finna það magn sem hentar bæði uppskriftinni og eigin smekk.