Kryddbrauð
Mjúkt og ilmandi kryddbrauð.
Þessi uppskrift er frábær leið til að bæta trefjum inn í mataræðið þrátt fyrir að uppfylla aðeins að hluta til opinber næringarviðmið um trefja í 100 grömmum.

Mjúkt og ilmandi kryddbrauð.
Þessi uppskrift er frábær leið til að bæta trefjum inn í mataræðið þrátt fyrir að uppfylla aðeins að hluta til opinber næringarviðmið um trefja í 100 grömmum.

Forhitið ofninn í 190°C með blæstri.
Setjið hveiti, heilhveiti, haframjöl, sykur, engifer, negul, kanil, kakó, salt og matarsóda saman í stóra skál og blandið saman.
Brjótið eggið í litla skál og bætið því ásamt ab-mjólkinni út í þurrefnin. Hrærið létt með sleif þar til allt hefur blandast vel. Ef deigið er mjög þétt er hægt að bæta við örlitlu vatni eða meiri Ab-mjólk og hræra vel saman. Deigið á að vera aðeins þétt en þó á að vera auðvelt að hræra í því.
Smyrjið brauðform með olíu eða mjúku smjöri - eða setjið bökunarpappír í formið - og hellið deiginu í.

Bakið í ofni í 50-60 mínútur eða þar til brauðið er bakað í gegn. Gott er að stinga í miðjuna á brauðinu með gaffli eða kökupinna eftir 50 mínútur og sjá hvort að brauðið er bakað í gegn. Ef eitthvað deig kemur á gaffalinn þarf brauðið örlítið lengri tíma til að bakast.
Nota má enn meira heilhveiti eða malaða hafra á móti hveitinu ef maður vill bæta trefjum í uppskriftina. Einnig er hægt að nota hveiti í stað heilhveitis en við mælum með heilhveitinu til að auka við trefjamagnið í brauðinu.
Þessa uppskrift er tilvalið að margfalda og gera 2-3 brauð í einu. Auðvelt er að frysta kryddbrauð en einnig geymast þau vel innpökkuð við stofuhita í 2-3 daga.
Grunnuppskrift (1 brauð) miðast við 8 skammta.