„Best fyrir“ & „síðasti notkunardagur“
Margir velta fyrir sér hvort matvæli séu örugg eftir að dagsetning á umbúðum rennur út. Að skilja muninn á „best fyrir“ og „síðasti notkunardagur“ getur sparað peninga, minnkað matarsóun og aukið öryggi.
Fyrstu árin eru mjög mikilvæg fyrir mótun matarsmekks og matarvenja barna (e. food preferences). Matur og drykkir barna ættu að veita nauðsynlega næringu til vaxtar og þroska, auk þess að stuðla að góðri orku, úthaldi og vellíðan í daglegu lífi. Hér má finna barnvænar uppskriftir sem hægt er að prófa sig áfram með.
Foreldrar og forráðamenn barna eru mikilvægar fyrirmyndir þegar kemur að heilbrigðum matarvenjum. Með því að borða hollan og fjölbreyttan mat sjálf gefa foreldrar gott fordæmi og hjálpa börnum að þróa jákvætt samband við mat.
Börn læra mikið af matarvenjum fólksins í kringum sig.
Gagnlegt viðmið er að foreldrar ákveði hvað, hvenær og hvar er borðað, en barnið velur sjálft hvort það borðar og hversu mikið. Þannig fá börn tækifæri til að hlusta á eigin svengdartilfinningu og móta matarvenjur sem geta nýst þeim alla ævi.
Góð regla er að bjóða upp á fjölbreyttan mat og leyfa börnum reglulega að prófa ný matvæli á sínum forsendum og hraða.
Börn þurfa oft að smakka nýjan mat mörgum sinnum áður en þau læra að meta hann.
Börn þurfa oft að smakka nýjan mat allt að 8–15 sinnum áður en þau samþykkja hann, sérstaklega grænmeti og aðeins bitrari hráefni. Því er mikilvægt að halda áfram að bjóða börnum nýjan mat, jafnvel þótt fyrstu skiptin gangi treglega.
Rannsóknir sýna einnig að mikilvægt er að bjóða grænmeti og ávexti strax frá unga aldri, þar sem það eykur líkurnar á því að börn læri að meta þessi matvæli síðar á lífsleiðinni. Annað getur þó átt við um börn til dæmis með einhverfu og í slíkum tilfellum er gott að leita ráða hjá sérfræðingum.
Það getur einnig hjálpað að gera matinn meira aðlaðandi með litríkum ávöxtum og grænmeti, skemmtilegri framsetningu eða með því að leyfa börnum að taka þátt í einfaldri matargerð.
Þegar börn fá að taka þátt í matargerð eykst sjálfstraust þeirra og áhugi á mat.
Börn eru líklegri til að smakka mat sem þau hafa hjálpað til við að útbúa.
Það að skera niður ávexti og hræra í grautnum eða sósunni getur aukið skilning barna á mat og hjálpað þeim að þora að prófa nýjan mat. Um leið er hægt að nýta tækifærið og ræða við þau um næringarefni og mikilvægi fjölbreytts mataræðis fyrir vöxt og heilsu.