„Best fyrir“ & „síðasti notkunardagur“
Margir velta fyrir sér hvort matvæli séu örugg eftir að dagsetning á umbúðum rennur út. Að skilja muninn á „best fyrir“ og „síðasti notkunardagur“ getur sparað peninga, minnkað matarsóun og aukið öryggi.
Börn læra mikið af umhverfinu í kringum sig þegar kemur að mat og máltíðum. Smáar breytingar í daglegu lífi geta hjálpað þeim að þróa með sér góðar matarvenjur og jákvætt samband við mat.
Gott er að skera niður ávexti og grænmeti og hafa til reiðu í ísskápnum. Þannig verður auðveldara fyrir börn að grípa í hollan kost. Einnig má nota meira grænmeti í máltíðir, til dæmis í súpur, þeytinga eða lasagna, til að auka neyslu þess án þess að börn upplifi pressu.
Smoothie-skálar og jógúrt með ávöxtum og berjum geta gert máltíðir litríkari og meira aðlaðandi.
Þegar hollur matur er aðgengilegur er auðveldara fyrir börn að velja hann.
Vatn er besti svaladrykkurinn fyrir börn og styður við vöxt, þroska, líðan og góða tannheilsu. Ráðlegt er að bjóða einungis upp á ávaxtasafa við sérstök tilefni, þar sem þeir innihalda oft mikið af sykri. Ávaxtasykur ætti helst að koma úr heilum ávöxtum eða heimatilbúnum þeytingum.
Æskilegt er að takmarka sætabrauð, snakk, sætindi, sykraðar mjólkurvörur og mikið unnin matvæli, en bjóða frekar ferskt grænmeti, ávexti, próteinríkar matvörur eins og fisk, magurt kjöt og baunir, hreinar mjólkurvörur og heilkorn.
Litlar breytingar á daglegum venjum geta haft mikil áhrif á matarvenjur barna til framtíðar.
Samkvæmt ráðleggingum ættu börn helst að fá minna en 10% af orku sinni úr viðbættum sykri. Jógúrt með miklu magni viðbætts sykurs getur því innihaldið stóran hluta af ráðlögðum dagskammti fyrir yngri börn. Því getur verið betra að velja jógúrt með minna magni viðbætts sykurs eða hreina jógúrt með ferskum ávöxtum eða berjum.
Fjölskyldumáltíðir eru mikilvægar fyrir heilsu barna. Rannsóknir sýna að börn sem borða að minnsta kosti þrisvar sinnum í viku með fjölskyldunni eru líklegri til að þróa með sér góðar matarvenjur og viðhalda heilbrigðri líkamsþyngd.
Fjölskyldumáltíðir geta styrkt bæði matarvenjur og tengsl innan fjölskyldunnar.
Máltíðir gefa einnig tækifæri til að styrkja tengsl fjölskyldumeðlima og skapa notalegar samverustundir. Góður leikur getur verið að allir gefi matnum einkunn – það getur skapað skemmtilega umræðu og aukið áhuga barna á nýjum mat.
Hver jákvæð breyting í átt að betri matarvenjum barna skiptir máli. Fjölbreyttur og næringarríkur matur í takt við næringarráðleggingar getur stutt við góða heilsu, aukin lífsgæði og minni líkur á heilsutengdum vandamálum síðar á ævinni.