„Best fyrir“ & „síðasti notkunardagur“
Margir velta fyrir sér hvort matvæli séu örugg eftir að dagsetning á umbúðum rennur út. Að skilja muninn á „best fyrir“ og „síðasti notkunardagur“ getur sparað peninga, minnkað matarsóun og aukið öryggi.
Konfektgerð getur verið notaleg samverustund yfir hátíðarnar og hjá mörgum er heimatilbúið konfekt hluti af jólahaldinu. En hvernig má gera konfektið aðeins næringarríkara? Oft þarf ekki annað en að nota fjölbreytt hráefni sem gefa gott bragð, skemmtilega áferð og um leið meiri næringu.
Konfekt býður upp á ótal möguleika. Hnetur, möndlur, fræ, hafrar, kókosmjöl og þurrkaðir ávextir gefa mismunandi bragð og áferð og bæta jafnframt trefjum, vítamínum og steinefnum við konfektið.
Til dæmis má nota:
Dökkt súkkulaði inniheldur að jafnaði meira kakó og minna af sykri en mjólkursúkkulaði. Kakóið gefur djúpt og örlítið beiskt bragð sem passar vel með hnetum, þurrkuðum ávöxtum og kryddi.
Fyrir þá sem vilja mildara bragð má blanda saman dökku súkkulaði og mjólkursúkkulaði. Gott getur verið að byrja á helmingi af hvoru og prófa sig síðan áfram.
Örlítið sjávarsalt getur dregið fram bragðið af súkkulaði, hnetum og öðrum hráefnum.
Maukaðar döðlur, rúsínur og aðrir þurrkaðir ávextir geta gefið konfekti bæði sætu og mjúka áferð. Þeir innihalda sykur en jafnframt trefjar og ýmis vítamín og steinefni.
Maukaður banani og eplamauk geta einnig hentað í mjúkar fyllingar og gefið raka, sætu og ávaxtabragð. Þar sem þau innihalda mikinn vökva geta þau þó breytt áferðinni og stytt geymsluþolið. Slíkt konfekt þarf að geyma í kæli og er best að borða fljótlega.
Hunang og hlynsíróp gefa sætu og einkennandi bragð en teljast, líkt og venjulegur sykur, til viðbætts sykurs. Þau innihalda einnig vökva og koma því ekki alltaf beint í stað sykurs án þess að uppskriftin sé aðlöguð.
Mismunandi sykurtegundir gefa ólíkt bragð og áferð, en næringarlega séð skiptir magn viðbætts sykurs yfirleitt meira máli en hvaða tegund er valin.
Hefðbundið konfekt og næringarríkari útfærslur geta vel farið saman. Með því að nota hnetur, fræ, hafra eða þurrkaða ávexti má auka fjölbreytni og næringargildi, en konfekt er áfram sætt góðgæti sem nýtur sín vel yfir hátíðarnar. Á sama bakka geta verið gamlar uppáhalds konfektuppskriftir í bland við döðlukúlur, súkkulaðihúðaðar hnetur og aðrar nýjar tilraunir.
Best er að byrja á einföldum breytingum og leyfa bragðinu að ráða för. Þannig verður konfektgerðin áfram skemmtileg, fjölbreytt og notalegur hluti hátíðanna.