„Best fyrir“ & „síðasti notkunardagur“
Margir velta fyrir sér hvort matvæli séu örugg eftir að dagsetning á umbúðum rennur út. Að skilja muninn á „best fyrir“ og „síðasti notkunardagur“ getur sparað peninga, minnkað matarsóun og aukið öryggi.
Desember er tími ljóss, hefða og samveru. Þá njóta margir þess að elda, baka og skapa góðar minningar með fólkinu sem þeim þykir vænt um. Undirbúningurinn sjálfur – mandarínulyktin, bakstursilmurinn og heitt kakó á dimmum vetrardögum – getur fært okkur ró, gleði og hlýju.
Hefðbundinn bakstur á réttilega sinn stað, en það getur líka verið skemmtilegt að blanda saman gömlum hefðum og nýjum hugmyndum og gera hluta af bakstrinum aðeins næringarríkari.
Með einföldum breytingum, eins og að bæta við trefjaríkum hráefnum eða minnka sykurinn þar sem það hentar, má auka fjölbreytnina án þess að fórna bragði eða góðri stemningu.
Hluti af bakstrinum getur því haldið sér alveg hefðbundinn á meðan í öðrum uppskriftum er prófað að nota grófara mjöl, hafra, ávexti, ber, hnetur eða fræ. Þannig verður jólabaksturinn bæði fjölbreyttari og hollari, en áfram jafn ljúffengur og áður.
Ein einföld leið til að auka trefjainnihaldið er að skipta hluta af hvíta hveitinu út fyrir grófara mjöl eða hafra. Trefjar styðja við meltinguna, geta aukið seddu og stuðlað að jafnari orku yfir daginn.
Heilkornamjöl inniheldur alla hluta kornsins og hefur þar af leiðandi meira magn af trefjum og næringarefnum en hvítt hveiti.
Gott er að hafa í huga að grófara mjöl getur breytt áferð, bragði og vökvaþörf uppskriftarinnar. Því er oft best að byrja á því að skipta út hluta hvíta hveitisins í byrjun og prófa sig síðan áfram með hlutföllin.
Trefjainnihald getur verið mismunandi eftir vörumerkjum og mölun, en hér eru almenn viðmið:
Trefjar í mismunandi mjöltegundum (per 100 g)
Í sumum kökum má prófa sig áfram með möndlumjöl eða kókoshveiti, eins og í súkkulaðiköku með avókadói og döðlum. Þessar mjöltegundir haga sér þó öðruvísi en hveiti. Kókoshveiti dregur til dæmis í sig mikinn vökva og því er yfirleitt ekki hægt að skipta því beint út fyrir hveiti í sama magni.
Hafrar, fræ og hnetur geta einnig bætt áferð, bragði, trefjum og öðrum næringarefnum við baksturinn. Ávextir, ber og þurrkaðir ávextir geta gefið sætu, aukið raka og sett litríkan svip á kökur og annað bakkelsi.
Best er að velja uppskriftir sem eru sérstaklega hannaðar fyrir ólíkar mjöltegundir eða byrja á litlu magni og prófa sig áfram. Markmiðið er ekki að breyta öllum bakstri heldur að skapa fjölbreytni og finna nýjar útfærslur sem gætu orðið að nýju uppáhaldi.