Rauðrófu smoothie

graenmetis
kjotlaust

Fagurrauðbleikur smoothie úr rauðrófum, grænum eplum og kanil.

Rauðrófur eru rík uppspretta trefja, C-vítamíns, fólats, kalíums, járns og magnesíums. Þær innihalda einnig andoxunarefnið betanín, sem gefur þeim þennan fallega lit og bætir næringargildi drykksins.

Til að spara tíma má nota foreldaðar rauðrófur.

Mjólk og mjólkurafurðir (þ.m.t. laktósi),
Rauðrófu smoothie

Aðferð

  1. Hitið ofninn í 200°C.

  2. Skolið rauðrófur en látið hýðið vera á. Vefjið hverja rauðrófu inn í álpappír og setjið á ofnplötu. Bakið við 200°C í 45–60 mínútur eða þar til þær eru mjúkar og auðvelt er að stinga í þær með gaffli. Látið kólna, takið úr álpappírnum og nuddið hýðið af. Ef þið notið forsoðnar rauðrófur, farið þá beint í næsta skref.

  3. Flysjið epli og skerið í bita. Skerið rauðrófur og banana einnig í bita.

  4. Setjið rauðrófur, epli, banana, hunang, skyr, engifer, vatn og kanil í blandara og maukið þar til áferðin verður silkimjúk og þykktin ákjósanleg. Einnig má nota töfrasprota og mauka í háu mæliglasi eða skál.

Skreytið skálina með því sem ykkur þykir gott, til dæmis möndluflögum, höfrum, sesamfræjum eða ferskum berjum. Á síðunni má finna fleiri hugmyndir að hráefnum fyrir smoothiesskálar sem henta bæði í grunn og sem toppur á skálar eins og þessar.

Til að fá þykkari smoothieskál má bæta við meira af skyri, banana eða rauðrófum.

Næringargildi
User Image

Höfundur

Gott og einfalt
Gott og einfalt

Innihald

2 skammtar
50 
g
Rauðrófur (ferskar eða foreldaðar)
stk
Epli (grænt)
stk
Bananar (frosinn eða ferskur)
tsk
Hunang (eða sæta að eigin vali - valkvætt)
200 
g
Skyr (hreint - eða önnur hrein jógúrt)
msk
Engifer (engifersafi, eða 1 tsk rifið engifer)
msk
Vatn (eða eftir smekk)
0.2 
tsk
Kanill
Bæta á innkaupalista
Bæta á vikumatseðil
Prenta uppskrift
Afrita slóð

Slóð hefur verið afrituð

Senda í tölvupósti