Gul smoothieskál

graenmetis
kjotlaust

Gul og góð smoothieskál með mangói, ananas og bönunum. Fullkomin blanda af sætu og suðrænu bragði.

Gott er að leyfa frosnu ávöxtunum að þiðna í um 5 mínútur í blandaraskálinni á meðan hin hráefnin eru tekin til. 

Mjólk og mjólkurafurðir (þ.m.t. laktósi),
Hnetur og afurðir úr þeim,
Kornvörur sem innihalda glúten,
Jarðhnetur og afurðir úr þeim,
Gul smoothieskál

Aðferð

  1. Setjið mangó, ananas og banana í blandara og látið þiðna í um 5 mínútur. 

  2. Takið stein úr döðlum (ef þarf) og afhýðið appelsínu. Setjið döðlur, appelsínu, möndlur, kasjúhnetur, hnetusmjör og mjólk að eigin vali (eða vatn) í blandara og blandið þar til þeytingurinn verður silkimjúkur.

  3. Setjið hreint skyr í botninn á skálum og hellið síðan gulu smoothie-blöndunni yfir, jafnt í hverja skál.

  4. Takið utan af drekaávöxt (pitaya) og mangói, skerið í teninga og raðið ofan á þeytinginn til skrauts. Bætið svo við höfrum, kókosflögum, chiafræjum eða öðru sem til er á heimilinu og þykir ykkur gott.

Þessa skál má einnig einfalda eins og hægt er, nota þá frosnu og fersku ávexti sem til eru hverju sinni og nota þær hnetur sem eru í skápunum. Síðan má nota vatn eða annan vökva í stað mjólkur. 

Einnig er hægt er að toppa skálina með ananas, kiwi, döðlum, hnetusmjöri, granóla, appelsínum, hampfræjum, möluðum hörfræjum, sólblómafræjum eða öðru sem er til í eldhúsinu hverju sinni. Kynnið ykkur hugmyndir af hráefnum fyrir smoothiesskálar sem hægt er að nota bæði í grunninn og til að toppa þær.   

Næringargildi
User Image

Höfundur

Gott og einfalt
Gott og einfalt

Innihald

2 skammtar
360 
g
Mangó (t.d. frosið)
200 
g
Ananas (t.d. frosinn)
stk
Bananar (ferskur eða frosinn)
stk
Döðlur
0.25 
dl
Möndlur
0.25 
dl
Kasjúhnetur
msk
Hnetusmjör
0.5 
dl
Mjólk (að eigin vali - eða vatn)
0.5 
stk
Appelsínur
1.5 
dl
Skyr (hreint)
0.25 
stk
Drekaávöxtur (valkvætt)
0.25 
stk
Mangó (valkvætt)
10 
g
Haframjöl (valkvætt)
10 
g
Kókosflögur (valkvætt)
g
Chiafræ (valkvætt)
Bæta á innkaupalista
Bæta á vikumatseðil
Prenta uppskrift
Afrita slóð

Slóð hefur verið afrituð

Senda í tölvupósti