Græn smoothieskál

graenmetis
kjotlaust

Silkimjúk græn næringarbomba toppuð með ferskum berjum og hökkuðum hnetum.

Mjólk og mjólkurafurðir (þ.m.t. laktósi),
Hnetur og afurðir úr þeim,
Græn smoothieskál

Aðferð

  1. Takið utan af banana og skerið í fjóra bita. Afhýðið kíwí og skerið í fernt. Skerið avókadó í tvennt og skafið úr það magn sem þarf, sjá nánari upplýsingar um meðhöndlun á avókadó.

  2. Skolið spínat og grænkál vel og látið vatnið renna af.

  3. Setjið banana, kíwí, spínat, grænkál, möndlusmjör, chiafræ, mjólk og rauð ber í blandara. Blandið í nokkrar mínútur þar til blandan verður silkimjúk.

  4. Berið fram í skál og toppið með ferskum eða frosnum berjum og hökkuðum pistasíukjörnum. Ef þið viljið þynnri þeyting má bæta við smá meiri vökva og bera hann fram í glasi.

Til að auka próteinmagn má bæta hreinu skyri við uppskriftina í stað hluta af mjólkinni eða vatninu. Hér eru fleiri hugmyndir af hráefnum sem hægt er að nota bæði í grunninn og til að toppa smoothieskálarnar með.   

Gott ráð er að taka banana sem eru komnir á síðasta snúning, skera þá niður og geyma í boxi í frysti. Frosnir bananar eru frábærir í þeytinga og aðrar sætar uppskriftir.

Næringargildi
User Image

Höfundur

Gott og einfalt
Gott og einfalt

Innihald

2 skammtar
stk
Bananar (frosnir)
stk
Kíví
0.25 
stk
Avókadó (eða meira af möndlusmjöri)
60 
g
Spínat (ferskt eða frosið)
20 
g
Grænkál (einnig hægt að setja meira spínat í staðinn)
msk
Möndlusmjör (eða hnetusmjör)
msk
Chiafræ (eða möluð hörfræ)
400 
ml
Mjólk (að eigin vali - eða vatn)
50 
g
Rauð berjablanda (fersk eða frosin)
10 
g
Pistasíukjarnar (eða möndlur)
Bæta á innkaupalista
Bæta á vikumatseðil
Prenta uppskrift
Afrita slóð

Slóð hefur verið afrituð

Senda í tölvupósti