Besta hnetusteikin
Þessi hnetusteik frá Sollu er algjör jólaklassík. Hún hentar vel á hátíðarborðið en er ekki síður góð sem hversdagsréttur þegar maður vill gera aðeins vel við sig.

Þessi hnetusteik frá Sollu er algjör jólaklassík. Hún hentar vel á hátíðarborðið en er ekki síður góð sem hversdagsréttur þegar maður vill gera aðeins vel við sig.

Hitið ofn í 170°C.
Skolið rauðar linsubaunir undir köldu vatni í sigti.
Takið utan af hvítlauk, saxið fínnt eða pressið.
Setjið linsubaunir í pott ásamt vatni, helmingnum af hvítlauknum, karrímauki og 2/3 af grænmetiskraftinum. Stillið á hæsta hita og leyfið suðunni að koma upp. Lækkið þá í miðlungshita og látið sjóða í um 20 mínútur eða þar til linsurnar eru mjúkar og fullsoðnar.
Setjið kasjúhnetur og heslihnetur á ofnplötu með bökunarpappír og ristið í ofni í um 6-8 mínútur. Gott er að rista eina tegund í einu ef hægt er.
Leyfið hnetunum að kólna og malið þær síðan gróft í matvinnsluvél eða hakkara eða saxið með góðum eldhúshníf.
Skrælið sætar kartöflur og sellerírót og skerið í miðlungsstóra teninga (2x2). Setjið á ofnskúffu með bökunarpappír og kryddið með rósmarín, laukdufti, salti og 1/3 af olíunni.
Hækkið hitann á ofninum í 200°C. Bakið sætu kartöflurnar og sellerírótina í ofni í 18-20 mínútur. Takið þær þá úr ofninum og látið kólna.
Afhýðið lauk og saxið fínt. Skolið og skerið sveppi í þunnar sneiðar.
Hitið 2/3 af olíunni á pönnu við meðalháan hita og mýkið lauk og restina af hvítlauknum. Bætið síðan sveppunum á pönnuna ásamt örlitlu salti og steikið í um 5 mínútur til viðbótar. Leggið til hliðar og leyfið að kólna.
Afhýðið gulrætur og rífið niður með rifjárni.
Finnið til stóra skál. Setjið öll hráefnin í skálina; soðnu linsubaunirnar, malaðar kasjú- og heslihnetur, sætar kartöflur og sellerírót, sveppi, lauk, hvítlauk, rifnar gulrætur, tómatpúrru, mangó chutney, restinni af grænmetiskrafti, timían, salvíu, cayenne pipar og restina af saltinu. Hrærið saman með sleif eða skeið.
Lækkið ofninn í 180°C. Klæðið brauðform (11x24 cm) með bökunarpappír. Hellið blöndunni í brauðformið og setjið álpappír yfir. Bakið við 180°C í 40 mínútur.
Eftir 40 mínútur fjarlægið álpappírinn af forminu. Takið svo steikina úr forminu með ofnhönskum og hvolfið henni á ofnplötu eða í eldfast mót. Bakið í 10-15 mínútur til viðbótar í ofninum.
Leyfið hnetusteikinni að hvíla eftir eldunartímann í um 10 mínútur áður en að hún er skorin.
Það er tilvalið að baka hnetusteikina deginum áður en hún er borin á borð, þar sem hún geymist vel í ísskáp og auðvelt er að hita hana upp samdægurs. Þá er gott að skera steikina í sneiðar og baka sneiðarnar í ofni í um 10 mínútur á hvorri hlið.
Með hnetusteikinni fer vel að bera fram sætkartöflumús, ofnbakað rótargrænmeti eða blómkál, auk brokkolís eða brokkolíni, sérstaklega yfir hátíðarnar. Kínóa eða brún hýðishrísgrjón og ferskt salat passa einnig vel með réttinum.
Sveppasósa, lauksósa (vegan gravy) eða aðeins ferskari sinneps- og appelsínusósa eru allar góðir kostir með hnetusteikinni.