Linsubauna bolognese með kúrbítsspagettí
Léttur og næringarríkur grænmetisréttur sem leikur við bragðlaukana.

Léttur og næringarríkur grænmetisréttur sem leikur við bragðlaukana.

Takið utan af lauk og hvítlauk og saxið smátt. Skolið gulrætur og sellerí og saxið fínt.
Hitið olíu í potti við miðlungshita. Setjið lauk, hvítlauk, gulrætur og sellerí á pönnuna og steikið í 5–7 mínútur. Hrærið reglulega þar til grænmetið verður mjúkt og ilmandi.
Setjið tómatpúrru og kryddblöndu út í og hrærið saman við grænmetið. Bætið svo tómatapassata og vatn í pottinn.
Skolið linsubaunir í sigti undir köldu vatni og hristið vatnið vel af. Færið þær síðan yfir í pott ásamt vatn og látið suðuna koma upp. Lækkið síðan hitann niður í miðlungslágt. Látið malla í um það bil 30 mínútur eða þar til linsubaunirnar eru orðnar mjúkar. Hrærið af og til í pottinum með sleif og saltið og piprið til eftir smekk.
Bætið smá vatni út í ef vökvinn gufar upp áður en linsurnar eru orðnar mjúkar. Munið að mismunandi tegundir linsa þurfa ólíkan suðutíma og draga í sig mismikið af vökva.
Skolið kúrbít og skerið endana af. Notið spíralskera ef þið eigið slíkan og skerið kúrbítinn í mjóar lengjur líkt og núðlur. Annars má nota rifjárn, ostaskera eða hníf til að skera hann í þunnar ræmur.
Skolið ferska basilíku og saxið smátt.
Berið sósuna fram með kúrbítspasta og stráið ferskri basilíku yfir. Gott er að hræra kúrbítspastað saman við heita sósuna í lokin þannig að það mýkist örlítið. Ef þið viljið má bæta við smá chillíflögum eða næringarger fyrir dýpra bragð.
Linsubaunir og grænmeti fara vel saman og verða oft enn betri daginn eftir. Berið réttinn fram með heilhveitispasta í stað kúrbítspasta ef það hentar betur.
1 g þurrar linsur eru um 2,6 g soðnar linsur.