Jólasalat

vegan
graenmetis
kjotlaust

Ferskt og frískandi salat sem passar einstaklega vel með jólamatnum en líka allan veturinn.

Sinnep og afurðir úr því,
Jólasalat

Aðferð

https://www.hjart-lungfonden.se/halsa/recept/
  1. Skolið rósakálið vel og fjarlægið skemmd blöð. Rífið rósakálið niður með rifjárni eða skerið í mjóar ræmur og setjið í skál.

  2. Setjið örlítinn hluta af olíunni og smá salti yfir rósakálið og hrærið aðeins saman með gaffli. 

  3. Skolið salatið og þerrið vel og rífið niður fínt með höndunum. Bætið þvi saman við rósakálið.

  4. Skolið eplið og skerið í þunnar sneiðar.

  5. Skerið appelsínuna í bita (ath. 1/5 af appelsínu, þ.e. safinn, er geymdur fyrir dressingu) og fjarlægið bæði börk og allat hvítt ef hægt er.

  6. Skerið granateplið í tvennt, takið fræin úr og fjarlægið allt hvítt þar sem það er biturt á bragðið.

  7. Setjið eplabitana, appelsínubitana og granateplafræin saman við salatið og blandið varlega saman.

  8. Kreistið safann úr appelsínunni (1/5 af henni) og setjið í skál ásamt sinnepi og þeirri olíun sem eftir er. Þeytið vel saman með gaffli og hellið yfir salatið.

  9. Blandið öllu vel saman og berið fram á fallegu fati.

Óhætt er að skipta eplum út fyrir peru ef þið viljið mildari og sætari áferð. Ef þið vijið meira kröns má setja ristuð fræ eða hnetur s.s. graskersfræ, sólblómafræ, möndlur eða pekanhnetur út á salatið. Smá límónusafi í dressinguna gefur líka ferskan keim. Salatið er frábært með öllum jólasteikum, kalkúni, nauti og jafnvel fiskréttum.

Næringargildi
User Image
Hjärt-Lungfonden

Innihald

2 skammtar
85 
g
Rósakál
1.75 
msk
Olía (t.d. repju- eða ólífuolía)
0.25 
tsk
Salt
40 
g
Salat (t.d. salatblanda eða frisée salat)
stk
Epli (að eigin vali)
1.25 
stk
Appelsínur (aldinkjötið og safinn)
0.5 
stk
Granatepli (eða t.d. hindber eða rifsber)
0.25 
tsk
Sinnep (t.d. dijon)

Miðað er við 1 msk af safa úr appelsínu og 1 stk skorna appelsínu í skammti fyrir tvo.

Bæta á innkaupalista
Bæta á vikumatseðil
Prenta uppskrift
Afrita slóð

Slóð hefur verið afrituð

Senda í tölvupósti