Stökkar kjúklingabaunir

vegan
graenmetis
kjotlaust

Einfalt, hollt og trefjaríkt snarl sem passar líka vel til að toppa salöt og súpur.

Stökkar kjúklingabaunir

Aðferð

  1. Forhitið ofn í 200°C blástur.

  2. Skolið kjúklingabaunirnar vel og þerrið með eldhúspappír eða hreinu viskustykki þar til þær eru alveg þurrar. Þetta skref er lykillinn að stökkum baunum.

  3. Fjarlægið laust hýði af kjúklingabaununum ef það hefur losnað eða losnar auðveldlega. 

  4. Hrærið saman í skál olíu, paprikukryddi, reyktri papriku, hvítlauksdufti, chillídufti og salti. Bætið baununum út í og hrærið varlega með skeið þar til þær hjúpast jafnt.

  5. Dreifið baununum jafnt á bökunarplötu klædda bökunarpappír.

  6. Bakið kjúklingabaunirnar í 30–40 mínútur, þar til þær eru gullinbrúnar og stökkar. Hristið plötuna eða hrærið í þeim á 15 mínútna fresti til að tryggja jafna bökun og passið að þær brenni ekki.

  7. Takið kjúklingabaunirnar úr ofninum og leyfið þeim að kólna í 5–10 mínútur á ofnplötunni því þá verða þær enn stökkari. Piprið eftir smekk.

Best er að borða baunirnar strax á meðan þær eru sem stökkastar. Þær geymast þó í lokaðri glerkrukku við stofuhita í 1–2 daga en missa smám saman stökkleikann. Stökkar kjúklingabaunir eru frábærar sem snarl, í salat eða út á súpur.

Næringargildi
User Image

Höfundur

Gott og einfalt
Gott og einfalt

Innihald

2 skammtar
240 
g
Kjúklingabaunir (úr dós)
msk
Olía (t.d. ólífu- eða repjuolía)
0.5 
tsk
Paprikuduft
0.25 
tsk
Reykt paprika (valkvætt)
0.5 
tsk
Hvítlauksduft
0.1 
tsk
Chillíduft (valkvætt)
0.25 
tsk
Salt
0.1 
tsk
Pipar (valkvætt)
Bæta á innkaupalista
Bæta á vikumatseðil
Prenta uppskrift
Afrita slóð

Slóð hefur verið afrituð

Senda í tölvupósti