Ofnbakað brokkolí
Stökkt og bragðmikið brokkolí, fullkomið sem meðlæti eða létt snarl. Einfalt og fljótlegt!

Stökkt og bragðmikið brokkolí, fullkomið sem meðlæti eða létt snarl. Einfalt og fljótlegt!

Hitið ofninn í 190°C með blæstri.
Skolið brokkolí og skerið í passlega bita. Fjarlægið ysta, grófa hluta stöngulsins ef vill og skerið miðjuna í litla munnbita.Takið hýðið af hvítlauksrifinu og saxið smátt. Rífið parmesan með fíngötuðu rifjárni.
Setjið brokkolíið á ofnplötu með bökunarpappír og dreifið því jafnt yfir plötuna.
Setjið ólífuolíu, hvítlauk, parmesan, salt og pipar yfir brokkolíið og veltið vel saman.
Bakið í miðjum ofni í um 15-20 mínútur. Hrærið með sleif 1-2 sinnum svo að brokkolíið bakist jafnt.
Ofnbakað brokkolí passar einstaklega vel með fiski, kjöti eða tófú. Kryddið eftir smekk og munið að brokkolíið má líka grilla þegar grillið er dregið fram.