Fræhrökkbrauð
Brakandi hollt og gott frækex. Þessi uppskrift er trefjarík.

Brakandi hollt og gott frækex. Þessi uppskrift er trefjarík.

Hitið ofninn í 160°C.
Blandið sólblómafræjum, hörfræjum, sesamfræjum og graskersfræjum saman við husk, maísmjöl, salt og vatn í skál. Látið blönduna standa í um 15 mínútur þar til hún hefur þykknað og tekið sig.
Bætið olíu og oregano saman við og hrærið með sleif eða skeið þar til allt hefur blandast vel saman.
Setjið bökunarpappír á ofnplötu og setjið deigblöndunni á hana. Ef gerður er stærri skammtur gæti þurft að nota fleiri plötur.
Leggið annan bökunarpappír yfir deigið og sléttið úr því með fingrum eða kökukefli þar til deigið hefur dreifst jafnt á plötunni og orðið nokkuð þunnt.
Bakið hrökkbrauðið í miðjum ofni í um 40-45 mínútur.
Takið hrökkbrauðið úr ofninum og leyfið því að kólna aðeins á ofnplötunni. Brjótið síðan í minni bita og geymið í loftþéttri krukku eða boxi.

Gott er að setja harðsoðin egg og avokadó ofan á fræhrökkbrauðið og jafnvel toppa með smá sítrónupipar.
Hægt er að geyma fræhrökkbrauðið í loftþéttu íláti við stofuhita í allt að 2 vikur.