Chana masala með sætkartöflufrönskum

kjotlaust
graenmetis
vegan

Ilmandi og bragðmikill indverskur baunaréttur.

Kornvörur sem innihalda glúten,
Chana masala með sætkartöflufrönskum

Aðferð

https://xn--fr-2ia.com/

    Sætkartöflufranskar

  1. Hitið ofninn í 180°C með blæstri. Setjið bökunarpappír á ofnplötu

  2. Afhýðið sætu kartöfluna og skerið hana í langa, þunna bita. Raðið bitunum á ofnplötu. Kryddið með hvítlauksdufti, pipar og rúmlega helmingnum af saltinu. Hellið tæplega helmingi af olíunni yfir og blandið vel saman.

    Step 2
  3. Bakið kartöflurnar í um 30 mínútur eða þar til þær eru gylltar að lit og stökkar að utan.

  4. Kínóa

  5. Skolið kínóa í sigti undir köldu vatni og setjið í pott. Sjóðið samkvæmt leiðbeiningum á pakkningu, oft í um 20 mínútur. Yfirleitt þarf 2 dl af vatni á móti 1 dl af kínóa.

  6. Chana masala

  7. Takið utan af lauk og hvítlauk og saxið smátt. Skrælið engifer og rífið það niður með rifjárni. Skolið tómata og skerið í litla teninga. Skerið helminginn af límónunni í báta og kreisti safann úr restinni af límónunni og leggið til hliðar fyrir annars vegar kjúklingabaunirnar og hins vegar jógúrtsósuna.

  8. Hitið restina af olíunni á pönnu við miðlungshita og steikið fyrst laukinn þar til hann verður glær og mjúkur.

  9. Bætið hvítlauk, engifer og tómötum á pönnuna ásamt lárviðarlaufi, kanilstöng (eða kanil), kóríanderdufti, garam masala, túrmeriki, kardimommudufti og negul. Steikið í 1–2 mínútur og hrærið reglulega.

    Step 7
  10. Setjið kjúklingabaunirnar í sigti og skolið undir köldu vatni. Bætið þeim út á pönnuna ásamt tómatpassata og límónusafa. Látið suðuna koma upp, setjið lok á og látið malla við vægan hita í 20–30 mínútur.

    Step 8
  11. Fjarlægið kanilstöngina og lárviðarlaufið úr pottinum áður en þið berið réttinn fram.

  12. Jógúrtsósa

  13. Skolið og saxið ferskt kóríander og myntu og blandið saman við sýrðan hafrarjóma. Smakkið sósuna til með broddkúmeni, límónusafa og smá salti og pipar.

Berið chana masala fram með kínóa, jógúrtsósu og límónubátum. Gott er að bjóða með ferskt grænmeti eins og blómkál, brokkolí, gúrku eða papriku – eða annað sem finnst í ísskápnum. Brauð eins og roti eða heilhveiti naan fara einnig vel með réttinum.

Jógúrtsósuna má útbúa eftir smekk, til dæmis með hreinni jógúrt eða sýrðum rjóma og þeim kryddum sem til eru heima. 

Næringargildi
Arna Engilbertsdóttir

Innihald

2 skammtar
450 
g
Sætar kartöflur
tsk
Hvítlauksduft
0.25 
tsk
Pipar
0.25 
tsk
Salt
msk
Olía
85 
g
Kínóa
stk
Laukur
rif
Hvítlaukur (ferskur)
10 
g
Engifer (ferskt)
stk
Tómatar (meðalstórir)
stk
Límóna (safinn og límónubátar)
stk
Lárviðarlauf
stk
Kanilstöng (eða kanill, malaður)
tsk
Kóríanderduft
0.5 
tsk
Garam masala
0.5 
tsk
Túrmerik
0.25 
tsk
Kardimommuduft
0.25 
tsk
Negull (duft)
480 
g
Kjúklingabaunir (úr dós)
500 
g
Tómatpassata (eða hakkaðir tómatar)
g
Kóríander (ferskt - má nota þurrkað en þá minna)
g
Mynta (fersk - valkvætt)
100 
g
Sýrður hafrarjómi
0.25 
tsk
Broddkúmen (öðru nafni cumin)
Bæta á innkaupalista
Bæta á vikumatseðil
Prenta uppskrift
Afrita slóð

Slóð hefur verið afrituð

Senda í tölvupósti