Tofu tikka masala

vegan
graenmetis
kjotlaust

Einn vinsælasti rétturinn í indverskri matargerð. Bragðmikill, næringarríkur og saðsamur réttur sem slær alltaf í gegn.

Sojabaunir og afurðir úr þeim,
Tofu tikka masala

Aðferð

https://xn--fr-2ia.com/

    Hrísgrjón

  1. Sjóðið hrísgrjón samkvæmt leiðbeiningum á pakkningum, oft í um 10-30 mínútur. Sjá nánari eldunarleiðbeiningar á hrísgrjónum.  

    Hrísgrjón
  2. Sósa og tofu

  3. Takið tofu-ið úr umbúðunum og vefjið því inn í viskustykki eða eldhúspappír til að draga úr vökva. Pressið létt til að losa sem mestan raka. Skerið tofu-ið í munnbitastóra bita og leggið til hliðar.

  4. Takið hýðið utan af lauknum og hvítlauknum og skerið smátt. 

  5. Hitið olíu í potti eða djúpri pönnu. Steikið laukinn í um 2-4 mínútur við miðlungsháan hita þar til hann verður mjúkur og gylltur. 

  6. Lækkið örlítið hitann á pönnunni. Bætið hvítlauk, garam masala, túrmeriki, broddkúmeni, engifer- og chillídufti saman við laukinn, ásamt nokkrum dropum af vatni þannig að myndist eins konar kryddmauk. Hitið í 1–2 mínútur. Ef þið viljið má sleppa vatninu og þurrrista kryddin, en passið þá vel að þau brenni ekki við.

    Step 5
  7. Hellið tómatpassata og kókosmjólk út í og hrærið vel. Látið suðuna koma upp og leyfið réttinum að malla í um 10 mínútur. Ef sósan er of þykk, bætið þá vatni út í. Stilla má magn vatns eftir smekk – setjið meira eða minna eftir því hvernig áferð þið viljið.

    Step 6
  8. Setjið tofu-ið út í, lokið pottinum og látið malla áfram í 10–15 mínútur. Hrærið varlega svo bitarnir haldist heilir.

  9. Bætið frosnum ertubaunum við og látið malla í 5–10 mínútur í viðbót.

    Step 8
  10. Skerið límónu í báta. 

Berið réttinn fram með límónubátum og hrísgrjónum. Gott er að toppa með sýrðum jurtarjóma og fersku kóríanderi fyrir enn meira bragð. Einnig er hægt að bjóða upp á meðlæti eins og skornar gúrkur, papriku eða ferska steinselju.

Tofu hentar afar vel í þennan bragðgóða rétt. Ef tími leyfir má láta það liggja lengur í sósunni svo það taki betur í sig kryddin. Indversk matargerð einkennist af ríkulegri notkun krydda og því er tilvalið að eiga Garam masala í kryddskúffunni til að geta eldað þennan rétt reglulega.

Næringargildi
Arna Engilbertsdóttir

Innihald

2 skammtar
dl
Hrísgrjón (t.d. hýðishrísgrjón)
250 
g
Tofu
0.25 
stk
Laukur
1.5 
rif
Hvítlaukur
0.5 
tsk
Garam masala (eða uppáhalds karrýblandan)
0.25 
tsk
Túrmerik (duft)
0.5 
tsk
Broddkúmen
0.5 
tsk
Engiferduft (duft en má nota ferskt)
0.25 
tsk
Chillíduft (eða cayenne pipar)
125 
ml
Tómatar (passata eða hakkaðir tómatar)
200 
ml
Kókosmjólk (t.d. létt)
0.5 
dl
Vatn
140 
g
Ertur (grænar - frosnar)
0.5 
stk
Límóna
Bæta á innkaupalista
Bæta á vikumatseðil
Prenta uppskrift
Afrita slóð

Slóð hefur verið afrituð

Senda í tölvupósti