Pítubrauð
Heimagert pítabrauð lyftir pítumáltíð í nýjar hæðir. Baksturinn tekur smá tíma en er vel þess virði.

Heimagert pítabrauð lyftir pítumáltíð í nýjar hæðir. Baksturinn tekur smá tíma en er vel þess virði.

Hitið ofninn í 250°C.
Blandið hveiti, heilhveiti, sesamfræjum, salti, sykri og þurrgeri saman í stóra skál.
Hitið vatn þar til það er volgt. Hrærið því saman við þurrefnin í skálinni með höndunum eða í hrærivél þar til deigið verður mjúkt og samfellt.
Látið deigið hefast í 20 mínútur á hlýjum stað.
Hnoðið deigið létt og mótið í bollur með höndunum. Ef notuð er grunnuppskrift þá skal miða við 8 jafn stórar bollur.
Fletjið hverja bollu út í hringlaga brauð sem er um 1/2 cm að þykkt. Látið brauðin hefast aftur á hlýjum stað í 10 mínútur.
Bakið brauðin í miðjum ofni í 3 mínútur, þau eiga að vera nokkuð ljós og mjúk.
Setjið brauðin á kökurist strax eftir bakstur. Leggið þurran klút eða viskustykki yfir og látið brauðin kólna undir klútnum.
Bakið aðeins fjögur brauð í einu svo hitinn í ofninum haldist jafn en þá eiga brauðin að blása út.
Prófið ykkur áfram með hveitihlutföllin t.d. með því að nota 6 dl hveiti og 2 dl heilhveiti ef þið viljið meira af trefjum.
Pítubrauð eru mjög skemmtileg í notkun. Fyllið þau með því sem þið eigið til t.d. baunum, linsubaunum, kjúklingi, tofu eða hakki. Bætið líka við grænmeti eins og gúrku, tómötum, papriku, kúrbít og jafnvel vínberjum eða ólífum.