Kínóasalat með ofnbökuðu grænmeti

vegan
graenmetis
kjotlaust

Litríkt og næringarríkt haustsalat með kínóa og fersku grænmeti. Frábær réttur sem bætir trefjum inn í mataræðið.

Kornvörur sem innihalda glúten,
Kínóasalat með ofnbökuðu grænmeti

Aðferð

  1. Hitið ofninn í 200°C. Setjið bökunarpappír í ofnskúffu.

  2. Takið hýðið af rauðlauknum og skerið hann í grófa bita. Skolið sætar kartöflur, gulrætur, kúrbít og brokkolí og skerið í hæfilega litla bita. Skerið botninn af rósakálinu, fjarlægið ystu blöðin og skerið það í tvennt.

  3. Setjið grænmetið á ofnplötu. Dreypið olíu yfir, kryddið með örlitlu salti og pipar og blandið létt saman. Bakið í ofni í um 20 mínútur eða þar til grænmetið er fulleldað og farið að mýkjast.

  4. Skolið kínóa í sigti undir köldu rennandi vatni. Setjið það síðan í pott með tvöfalt meira magni af vatni. Sjóðið samkvæmt leiðbeiningum á umbúðunum, yfirleitt í 15–20 mínútur, eða þar til kínóað er mjúkt og allt vatn hefur gufað upp.

  5. Ristið graskers- og sólblómafræ á þurri pönnu við meðalhita. Hristið pönnuna reglulega eða hrærið í fræjunum svo þau brenni ekki en það getur gerst mjög fljótt.

  6. Skerið granatepli í tvennt og takið fræin úr og setjið í skál. Passið að allt hvítt sé tekið burt þar sem það er mjög biturt á bragðið. 

  7. Setjið soðið kínóa í stóra skál og bætið bakaða grænmetinu saman við. Hellið smá ólífuolíu og balsamikediki yfir og blandið öllu létt saman.

  8. Toppið salatið með granateplakjörnum og fræjum. 

Í þetta salat er tilvalið að nota það grænmeti sem til er í ísskápnum eða frystinum til dæmis grasker, gulann lauk, hvítlauk, tómata, papriku, sveppi eða grænkál. Ef grænkál er notað er gott að skola það, rífa niður og bæta því á ofnplötuna síðustu 5–7 mínúturnar.

Næringargildi
User Image

Höfundur

Gott og einfalt
Gott og einfalt

Innihald

2 skammtar
1 
stk
Rauðlaukur
1 
stk
Sætar kartöflur
3 
stk
Gulrætur
0.5 
stk
Kúrbítur
0.5 
stk
Brokkolí (eða blómkál)
16 
stk
Rósakál
1.5 
msk
Olía
0.25 
tsk
Salt
0.25 
tsk
Pipar
1.5 
dl
Kínóa
1 
tsk
Graskersfræ
1 
msk
Sólblómafræ
0.5 
stk
Granatepli (kjarnarnir en má sleppa)
1 
tsk
Balsamikedik
Bæta á innkaupalista
Bæta á dagatal
Prenta uppskrift
Afrita slóð

Slóð hefur verið afrituð

Senda í tölvupósti