Aloo gobi

vegan
graenmetis
kjotlaust

Mildur indverskur grænmetispottur með kartöflum og blómkáli  – fullkominn heimilismatur og einnig góður sem meðlæti.

Kornvörur sem innihalda glúten,
Aloo gobi

Aðferð

https://xn--fr-2ia.com/
  1. Skolið og skerið kartöflur og blómkál í litla bita.

  2. Sjóðið vatn í katli eða potti. Setjið kartöflurnar í annan pott og hellið sjóðandi vatninu yfir þannig að það flæði yfir þær. Setjið pottinn á helluna og sjóðið kartöflurnar í 5–7 mínútur.

  3. Bætið síðan blómkáli út í pottinn, ásamt meira vatni ef þarf. Látið malla í 2–3 mínútur til viðbótar eða þar til grænmetið er orðið mjúkt en ekki ofeldað. Sigtið vatnið frá og setjið grænmetið til hliðar í skál.

  4. Takið utan af lauk og hvítlauk og saxið smátt.

  5. Hitið olíu í potti og steikið laukinn á vægum hita í 3–5 mínútur eða þar til hann verður glær og mjúkur. Bætið hvítlauknum, tómatpassata, vatni, kóríanderdufti, broddkúmen, engiferdufti, túrmeriki, garam masala og chillíflögum út í pottinn. Hrærið vel saman.

    Step 5
  6. Bætið elduðum kartöflum, blómkáli og ertum út í pottinn. Setjið lok á og látið malla við væga suðu í um 15 mínútur. Hrærið af og til og fylgist með að kartöflurnar og blómkálið mýkist án þess að ofeldast.

    Step 6
  7. Ef grænmetið er ekki orðið fulleldað og ef lítill vökvi er í botninum bætið þá örlítið af vatni út í og eldið aðeins lengur. 

  8. Skolið ferskt kóríander og skerið niður.

Berið fram með ferskum kryddjurtum og sýrðum hafrarjóma, jógúrt eða raita til að milda kryddin og skapa gott jafnvægi.

Næringargildi
Arna Engilbertsdóttir

Innihald

2 skammtar
250 
g
Kartöflur
300 
g
Blómkál
60 
g
Laukur
rif
Hvítlaukur
tsk
Olía (ólífuolía)
80 
ml
Tómatpassata (eða t.d. hakkaðir tómatar)
40 
ml
Vatn
tsk
Kóríanderduft
tsk
Broddkúmen
0.25 
tsk
Engiferduft
0.25 
tsk
Túrmerik
0.1 
tsk
Garam masala (valkvætt)
0.1 
tsk
Chillíflögur (valkvætt)
50 
g
Ertur (grænar - frosnar)
10 
g
Kóríander (ferskt - eða mynta)
msk
Sýrður hafrarjómi
Bæta á innkaupalista
Bæta á vikumatseðil
Prenta uppskrift
Afrita slóð

Slóð hefur verið afrituð

Senda í tölvupósti