Pottréttur með hnetusmjöri

vegan
graenmetis
kjotlaust

Einfaldur og bragðgóður pottréttur sem fær að malla í pottinum með lítilli fyrirhöfn.

Jarðhnetur og afurðir úr þeim,
Hnetur og afurðir úr þeim,
Pottréttur með hnetusmjöri

Aðferð

https://xn--fr-2ia.com/

    Hrísgrjón

  1. Sjóðið hrísgrjónin samkvæmt leiðbeiningum á pakkningunni, yfirleitt í 10–30 mínútur. Sjá nánari upplýsingar um eldun hrísgrjóna.

  2. Pottrétturinn

  3. Skrælið sætar kartöflur og takið utan af lauk. Skolið blómkál, papriku og tómata vel. Skerið allt saman í bita.

  4. Hitið olíu á pönnu eða í potti sem rúmar allan réttinn. Steikið laukinn við meðalhita í 2–3 mínútur, þar til hann verður mjúkur og glær.

  5. Bætið við sætum kartöflum og blómkáli og steikið áfram í 5 mínútur.

  6. Hellið kókosmjólk og vatni út í pottinn. Bætið karríi, óreganó, timían, chilidufti, hnetusmjöri, salti og pipar út í. Hrærið vel saman.

  7. Lækkið hitann og látið malla í 15–20 mínútur eða þar til grænmetið er mjúkt.

  8. Skolið aduki-baunirnar vel í sigti undir köldu vatni. Bætið baununum ásamt papriku og tómötum út í pottinn og hitið í 3–5 mínútur til viðbótar.

  9. Gúrku- og mangósalsa

  10. Skolið gúrkuna og kóríanderið. Takið hýðið af mangóinu. Skerið gúrku og mangó í litla bita og kreistið safann úr límónunni yfir. Fínsaxið kóríander og salthnetur og blandið saman við.

Berið hnetusmjörspottréttinn fram með hýðishrísgrjónum og fersku gúrku- og mangósalsa.

Það er óþarfi að hlaupa út í búð fyrir einstaka hráefni – notið þau krydd og grænmeti sem til eru og aðlagið eftir þörfum. Salsað má útfæra á marga vegu, til dæmis með ananas í stað mangós eða bara með gúrku og límónu. Mikilvægast er að njóta þess að elda og næra sig vel.

Næringargildi
Arna Engilbertsdóttir

Innihald

2 skammtar
120 
g
Hrísgrjón (t.d. hýðishrísgrjón)
250 
g
Sætar kartöflur
0.25 
stk
Laukur
100 
g
Blómkál (má vera frosið)
0.5 
stk
Paprika
100 
g
Tómatar
tsk
Olía
200 
ml
Kókosmjólk
0.6 
dl
Vatn
0.5 
tsk
Karrí
0.25 
tsk
Oreganó
0.25 
tsk
Timían
0.25 
tsk
Chillíduft
msk
Hnetusmjör
0.25 
tsk
Salt
0.25 
tsk
Pipar
200 
g
Aduki baunir (úr dós, eða svartar baunir)
0.25 
stk
Gúrka
0.25 
stk
Mangó
0.25 
stk
Límóna
g
Kóríander (ferskt)
msk
Jarðhnetur
Bæta á innkaupalista
Bæta á vikumatseðil
Prenta uppskrift
Afrita slóð

Slóð hefur verið afrituð

Senda í tölvupósti