Stökkt edamame salat

graenmetis
kjotlaust
vegan

Ferskt, einfalt og litríkt edamame-salat með hnetusósu. Tilvalið sem aðalréttur eða meðlæti.

Kornvörur sem innihalda glúten,
Jarðhnetur og afurðir úr þeim,
Sojabaunir og afurðir úr þeim,
Brennisteinsdíoxíð og súlfít,
Hnetur og afurðir úr þeim,
Stökkt edamame salat

Aðferð

https://xn--fr-2ia.com/

    Kínóa

  1. Skolið kínóa með vatni ef þess er þörf og sjóðið samkvæmt leiðbeiningum á pakkningu. Leggið til hliðar.

  2. Edamame baunir

  3. Sjóðið vatn í potti. Setjið edamame-baunir út í pottinn og sjóðið í 3–5 mínútur eða samkvæmt leiðbeiningum á umbúðum. Sigtið vatnið frá og saltið létt.

  4. Grænmetið

  5. Skolið papriku og skerið í litla teninga. Takið utan af mangóinu og skerið í teninga. Flysjið gulrætur og rífið með rifjárni. Saxið rauðkál fínt með hníf eða mandólíni. Skolið og þerrið salatið og rífið í meðalstóra bita. Skolið sykurbaunir og skerið í tvennt.

  6. Saxið vorlauk og jarðhnetur. 

    Step 4
  7. Hnetusósa

  8. Flysjið ferskt engifer og rífið með fíngerðu rifjárni. Takið utan af hvítlauknum og pressið eða saxið smátt. Kreistið safann úr límónunni.

  9. Blandið engiferi, hvítlauk og límónusafa saman við hnetusmjör, hrísgrjónaedik, tamarisósu og sriracha í skál. Bætið smá vatni út í ef þarf og hrærið vel saman með skeið.

  10. Samsetning

  11. Setjið kínóa og edamame baunir í stóra skál ásamt papriku, mangói, gulrótum, rauðkáli, salati og sykurbaunum. Hellið hnetusósunni yfir eða berið hana fram með salatinu.

  12. Skolið baunaspírurnar, þerrið þær og toppið salatið með þeim ásamt salthnetum og söxuðum vorlauk.

Ef eitthvað er ekki til hvort sem það er grænmeti, heilkorn eða sósa má sleppa því eða nota það sem til er. Njótið þess að elda, leikið ykkur með hráefni og aðlagið eftir smekk og aðstæðum.

Næringargildi
Arna Engilbertsdóttir

Innihald

2 skammtar
60 
g
Kínóa
100 
g
Edamame baunir
0.1 
tsk
Salt
75 
g
Paprika
0.5 
stk
Mangó
stk
Gulrætur
100 
g
Rauðkál
50 
g
Salat (að eigin vali - t.d. íssalat)
25 
g
Sykurbaunir
stk
Vorlaukur
70 
g
Jarðhnetur
g
Engifer
rif
Hvítlaukur
0.5 
stk
Límóna (safinn)
msk
Hnetusmjör
1.5 
msk
Hrísgrjónaedik
1.5 
msk
Tamarisósa (eða sojasósa)
tsk
Srirachasósa (eða chillímauk)
tsk
Vatn (valkvætt, ef þarf)
25 
g
Baunaspírur (grófar - valkvætt)
Bæta á innkaupalista
Bæta á vikumatseðil
Prenta uppskrift
Afrita slóð

Slóð hefur verið afrituð

Senda í tölvupósti